Boxæði í Keflavík 20. nóvember 2006 10:00 gríðarlegt forvarnargildi Guðjón Vilhelm segist sannfærður um að boxíþróttin hafi gríðarlegt forvarnargildi ef réttum boðskap er miðlað inni í klúbbunum.
Guðjón Vilhelm boxþjálfari var einn af þeim frumkvöðlum sem komu boxíþróttinni á kortið hér á landi fyrir nokkrum árum og vann mikið starf í Keflavík við uppgang íþróttarinnar þar. Hann tók sér frí frá þjálfun í tvö ár en er nú mættur til starfa á ný hjá BAG í Keflavík. „Ég tók að mér barna- og unglingastarfið núna í haust og það gengur alveg blússandi vel," segir Guðjón en yfir hundrað krakkar á grunnskólaaldri eru búnir að skrá sig í boxið fyrir veturinn. „Það var ráðinn erlendur þjálfari til að sjá um eldri boxarana og hann er bara að keyra það áfram," bætir hann við en BAG er með stór áform fyrir veturinn. „Við ætlum að halda mót hérna í Reykjanesbæ eftir áramótin og fá írskt hnefaleikalið í heimsókn. Það verður þá keppt bæði í yngri og eldri flokkum." Guðjón tók sér frí frá boxinu til þess að byggja upp fyrirtækið sitt, Humarsöluna, sem nú er komin á gott skrið. „Mig langaði til þess að fara aftur að þjálfa og vinna þá með krökkunum. Upphaflega var markmiðið að ná til þeirra krakka sem eru ekki þegar í einhverjum öðrum íþróttum enda sannfærðist ég enn frekar um það meðan ég var fyrir utan þetta hversu gríðarlegt forvarnargildi boxið hefur," segir Guðjón en hann segir það lykil-atriði að miðla réttum boðskap inn í klúbbana. „Ég á sjálfur fjögur börn og mér finnst alveg frábært að vera að þjálfa vini þeirra og kunningja því þannig tengist ég börnunum mínum enn frekar." Guðjón segir gríðarlega efnilega krakka vera að æfa í BAG í vetur. „Það eru margir sem eru ekki með minni hæfileika en Skúli „Tyson" á sínum tíma þannig að ég held að við eigum eftir að sjá marga góða stráka koma úr Keflavík á næstu árum," segir Guðjón Vilhelm stoltur.
Menning Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fleiri fréttir Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Sjá meira