Innlent

Bóndakona í Skagafirði sá líka dularfulla ljósið

Valur Grettisson skrifar

„Ég sá þessi ljós í gærkvöldi," segir bóndakona á fimmtugsaldri sem Vísir ræddi við fyrr í dag en hún segist hafa séð sömu ljós og Finnur Andrésson myndaði í Árbænum í gærkvöldi.

Bóndakonan var í bíl í Lýtingsstaðarhreppi í Skagafirði rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi þegar hún segist hafa séð ljósið tvívegis.

„Ég sá bara blikk og svo aftur blikk," segir bóndakonan sem var með eiginmanni sínum að keyra heim á leið.

„Ég hélt fyrst að þetta væri eitthvað endurvarp frá bílrúðunni sjálfri þannig ég lagði höndina á rúðuna, þá sá ég blikkið aftur," segir konan sem segir ljósið hafa verið með hinu undarlegasta móti.

Aðspurð hvort hún væri viss um að þetta væru ekki ljós úr flugvél sagði konan að hún væri fullviss.

„Það er mikil flugumferð hér yfir og maður sér ljósin vel í myrkrinu. Ég þekki muninn á framljósum flugvéla, vængljósum og ljósunum á búknum - þetta var ekki í líkingu við það enda sennilega tífalt stærra ljós eins og ég sá það," segir bóndakonan sem bætir við að hún hafi meira að það segja einu sinni séð gervihnött brenna upp í andrúmsloftinu:

„Það var mikil upplifun. Þá kom grænt langt ljós og úr varð talsvert sjónarspil. Þetta var ekki neitt í líkingu við það," segir hún.

Bóndakonan segist ekki hafa velt ljósinu fyrir sér fyrr en hún sá myndband Finns á Vísi.

„Þá sá ég að þetta voru svipuð ljós. Hinsvegar virðist ljósið vera blátt á myndbandinu en ljósið sem ég sá var hvítt," segir bóndakonan skagfirska sem segir ljósið þó hafa hagað sér með svipuðum hætti þar sem hún sá það.

Hún segir ljósið hafa verið í suðvestri og því virtist það vera yfir hálendinu.

„Ég tek samt fram að ég hef enga trú á því að þetta hafi verið fljúgandi furðuhlutur. Sennilega er þetta eitthvað fyrirbrigði sem var að fara í gegnum gufuhvolfið," segir bóndakonan sem er fullviss um að það megi finna eðlilegar skýringar á ljósinu þó sýnin hafi vissulega verið furðuleg.

Bóndakonan vildi ekki koma fram undir nafni, „ég get það ekki, þá myndu nágrannarnir ekki hætta að gera grín að mér á næsta þorrablóti," segir hún hlæjandi.


Tengdar fréttir

„Fljúgandi furðuhlutur“ í Árbænum

Lesandi Vísis sendi ritstjórninni þetta athyglisverða myndband þar sem sjá má blikkandi ljós á næturhimninum. Myndbandið var tekið klukkan 18:45 í Árbænum í gærkvöld þegar myndatökurmaðurinn var að koma heim úr vinnunni.

Geimverufræðingur efast ekki - Gnarr er þó ekki geimvera

Magnús Skarphéðinsson,formaður Hins Íslenska Geimverufélags, segist ekki efast um að ljósagangurinn í Árbæ í gærkvöldi sem Vísir hefur greint frá sé geimskip á ferð um himininn. Hann er hinsvegar á því að Jón Gnarr hafi farið með rangt mál þegar borgarstjórinn kallaði sig geimveru.

Vill útskýringar á dularfulla ljósinu

"Ég er sannfærður um að við séum ekki ein í heiminum," segir ungur Reykvíkingur sem náði myndum af dularfullu ljósi yfir Árbænum í gærkvöldi. Hugsanlega fyrsta sönnunin um heimsókn, úr öðrum heimi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×