Nánir samstarfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar, áttu fimm prósenta hlut í einu eignarhaldsfélaga Björgólfs. Það hafði í för með sér að Björgólfur gat fengið mun meira að láni í Landsbankanum, en ef hann hefði sjálfur átt hlutinn.
Eignarhald Björgólfs Thors Björgólfssonar á Landsbankanum var nokkuð flókið. Björgólfur Thor átti sjálfur félagið Valhamar Group Ltd, en eignarhlutur hans var 100 prósent. Valhamar Group átti síðan 95 prósenta hlut í Givenshire Equities sem skráð var á Kýpur og reikningur viðskiptavina Landsbankans í Lúxemborg (e. customer account) átti 5 prósenta hlut. Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs Thors, hefur nú upplýst, í fyrsta sinn í viðtali við DV, að þessi 5 prósent voru í eigu samstarfsmanna Björgólfs hjá Novator, en ekki fæst gefið upp hvaða starfsmenn þetta voru. Þessi vitneskja hefur ekki legið fyrir til þessa og kemur t.d ekki fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, því hingað til hefur aldrei verið gefið upp hverjir áttu 5 prósentin.
Givenshire á Kýpur átti síðan 100 prósenta hlut í félagi með sama nafn sem skráð var í Lúxemborg. Það félag átti síðan 49,95 prósenta hlut í Samson eignarhaldsfélagi ehf. sem átti síðan 42 prósenta hlut í Landsbankanum. Með því að stilla eignarhaldinu svona upp varð hlutur Björgólfs Thors í Landsbankanum undir 20 prósentum, var í raun 19,98 prósent.
Landsbankinn þurfti ekki að gefa upp lánveitingar
Afleiðingar af þessu voru nokkuð merkilegar. Því með því að vera með eignarhlut undir 20 prósentum var Björgólfur Thor ekki skráður sem tengdur aðili Landsbankans í skilningi reikningsskilastaðalsins IAS 24, en sama prósenta er í 18. gr laga um fjármálafyrirtæki. Landsbankinn þurfti því ekki að gefa upp lánveitingar til hans, eins og gildir um tengda aðila. Hefði 5 prósenta hluturinn sem var í eigu náinna samstarfsmanna verið í eigu Björgólfs sjálfs hefði hann farið yfir 20 prósentin. Þegar aðili á beint eða óbeint 20 prósent er hann talinn hafa veruleg áhrif á viðkomandi fyrirtæki og því beri að líta á það sem tengdan aðila við hann. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er það matskennt hverju sinni hvort hægt er að samsama starfsmenn við eigendur hlutafélags. Það velti t.d á fjárhagslegum tengslum þeirra innbyrðis, en Björgólfur Thor vill ekki gefa upp nöfn þeirra starfsmanna Novators sem áttu 5 prósentin. Sérfræðingar í félaga- og kauphallarrétti sem fréttastofa ræddi við, sem þó vilja ekki koma fram undir nafni, segja að það hafi ekki verið eðlileg vinnubrögð að flokka Björgólf Thor ekki sem tengdan aðila Landsbankanum. Þá geti náin tengsl verið til staðar þótt eignarhald viðkomandi fari ekki upp fyrir 20 prósent.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs Thors, vill ekki svara því hvaða starfsmenn það voru sem áttu 5 prósenta hlutinn. Það hafi verið breytilegt því starfsmenn hafi komið og farið hjá Novator. Í svari við fyrirspurn fréttastofu sagði hún: „Það tíðkaðist víða og tíðkast enn að starfsmenn eigi smærri hluti í félögum. Að sjálfsögðu var eignarhlutur starfsmanna í Givenshire tilkynntur til FME á sínum tíma og það hlýtur þú að geta fengið staðfest hjá eftirlitinu, teljir þú einhverja ástæðu til að fjalla um það. Þarna var aldrei um neinn „leynihlut" að ræða."
Fréttastofa náði ekki í Gunnar Þ. Andersen, forstjóra FME í dag, til að fá upplýsingar um hvort þessi vitneskja hafi legið fyrir hjá eftirlitinu. Þess ber að geta að 5 prósenta hluturinn í Givenshire Equities á Kýpur var skráður hjá Landsbankanum sem eign reiknings bankans í Lúxemborg (customer account). Starfsmenn Landsbankans höfðu semsagt ekki upplýsingar um að eignarhaldið væri annað, þ.e að um hafi verið að ræða eign starfsmanna Novators, en fréttastofa hefur undir höndum yfirlit frá starfsmanni Landsbankans um eignarhaldið á félaginu, eins og það var skráð hjá bankanum.