Formúla 1

Bílskúrinn: Brjálæði í Bretlandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes fagnar fyrsta og öðru sæti eftir erfiða baráttu í Bretlandi.
Mercedes fagnar fyrsta og öðru sæti eftir erfiða baráttu í Bretlandi. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom að lokum fyrstur í mark. Atburðarásin sem leiddi til þess var ótrúleg, þrátt fyrir að heimamaðurinn hafi verið á ráspól.

Hvað kom fyrir og hvernig náði Hamilton aftur forystunni. Rigningin og allt annað sem máli skiptir eftir breksa kappaksturinn í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Daniil Kvyat á fleygiferð, hann gerði þó mistök sem hugsanlega kostuðu hann verðlaunasæti.Vísir/Getty
Daniil Kvyat átti þriðja sæti í smástund

Christian Horner, keppnisstjóri Red Bull segir afar líklegt að Daniil Kvyat hefði blandað sér í baráttuna um verðlaunasæti hefði allt gengið upp.

Kvyat gleymdi sér eitt augnablik þegar fór að rigna, hann snerist á brautinni og missti af tækifærinu. Kvyat endaði sjötti.

„Þetta er í fyrsta skipti síðan í Mónakó sem mér finnst við vera með í keppninni. Við vorum að keppa við Ferrari og Kvyat tók lista vel fram úr Sebastian (Vettel) í Luffield beygjunni. Hefði Daniil ekki snúist hefði hann gert Vettel lífið leitt í baráttunni um þriðja sæti,“ sagði Horner.

Hamilton leiddist ekkert að frussa freyðivíninu eftir spennandi keppni og fullkomið þjónustuhlé.Vísir/Getty
Hvað var Hamilton að gera?

„Þegar Lewis tók þjónustuhlé var ég nokkuð viss um að það væru mistök. Aðstæður voru enn á einhverjum mörkum, ég var í raun mjög kátur þegar hann fór inn,“ sagði Nico Rosberg sem tók skamm unna forystu þegar Hamilton tók hið fullkomlega tímasetta þjónustuhlé.

Eftir erfiða ræsingu var á brattan að sækja til fyrir báða Mercedes bílana. Williams var í fyrsta og öðru sæti eftir einkar góða ræsingu. Keppnisáætlun Williams og rigning komu sér vel fyrir Mercedes menn.

Toto Wolff liðsstjóri Mercedes sagði eftir keppnina að það hefði verið ákvörðun Hamilton að taka þjónustuhlé á þessum tímapunkti.

„Ég held þetta sé í fyrsta skipti sem ég tek rétta ákvörðun um tímasetningu þjónustuhlés, vegna þess að ég sá að rigningin var að aukast,“ sagði Hamilton.

Felipe Massa á unan Valtteri Bottas, eins og liðið vildi hafa það, Williams leiðin var ekki farin fyrr en of seint.Vísir/Getty
Var Valtteri Bottas haldið nauðugum?

Williams leiðin er hugtak sem Pat Symonds, tæknistjóri liðsins notaði fyrir ekki löngu síðan. Í því felst að ökumenn Williams liðsins fá alltaf að keppa og verður ekki meinað að taka fram úr hvor öðrum beri það við.

„Má ég taka fram úr, ég get það á seinni beina kaflanum,“ spurði Valtteri Bottas óþreyjufullur snemma í keppninni. Hann fékk neitun og missti þar með af tækifærinu. Hefði Bottas geta unnið upp forskot, já sennilega, það leit að minnsta kosti allt út fyrir það.

Bottas hafði DRS til afnota fyrir aftan liðsfélaga sinn Felipe Massa og gat notað kjölsog hans á beinum köflum brautarinnar. Finninn er þrátt fyrir það fullviss um að hann hefði byggt upp forskot sem numið hefði um hálfri sekúndu á hring.

Seinna kom þó að því að Williams leyfði ökumönnum sínum að keppa en þá var of seint að stinga Mercedes af, Hamilton tók þjónustuhlé og forystuna í einni svipan.

Fernando Alonso missti sig vissulega ekki í gleðinni en hann sneri derhúfunni samt öfugt, sem er eitthvað.Vísir/Getty
Fernando Alonso sleppti gleðskapnum

Fernando Alonso kveðst „ekkert kátur,“ með sitt fyrsta stig fyrir McLaren-Honda. Hann segist þó skilja þýðingu þess fyrir liðið.

„Það er ekki tími til að fagna ennþá því þetta er eina stigi sem ég hef náð í, en auðvitað er gott fyrir liðið að ná í stig. Það léttir aðeins lund margra eftir erfiða mánuði undanfarið.

Þessi úrslit eru staðfesting á að framfarir séu að eiga sér stað.

Roy Salvadori ók Aston Martin í Formúlu 1 keppni í Hollandi árið 1959. Hann hætti keppni þegar vélin ofhitnaði.Vísir/Getty
Aston Martin á leið í Formúlu 1?

Orðrómur er á kreiki, hversu veikur sem hann er um að Aston Martin stefni á þáttöku í Formúlu 1 á næstu árum.

Hugmyndin á bakvið orðróminn er sú að Red Bull klæðist Aston Martin búning og noti þá Mercedes vélar en ekki Renault vélar. Þetta er talin vera eina færa leiðin fyrir Red Bull til að krækja í Mercedes vél. Þetta er áhugaverð hugmynd, svo mikið er víst.

Aðspurður vildi Christian Horner ekki slá orðróminn út af borðinu og Toto Wolff segir hurðina opna hjá Mercedes komist slíkur samningur á.

Hugsanlega hefur Aston Martin einnig áhuga á að taka yfir Force India eða Williams sem bæði nota Mercedes vél.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes tók þjónustuhlé á ögurstundu og tryggði sér 25 stig. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari tók þjónustuhlé á sama tíma og Hamilton og varð þriðji.

Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir breska kappaksturinn. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.

Bottas: Við höfum yfirhöndina í baráttunni við Ferrari

Lewis Hamilton nældi sér í ráspól á heimavelli á Silverstone brautinni í dag. Sinn áttunda á tímabilinu. Einungis Ayrton Senna og Michael Schumacher hafa oftar náð ráspól. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Mercedes fljótastir og McLaren áreiðanlegir

Nico Rosberg ók Mercedes bíl sínum hraðast allra á seinni æfingadegi Formúlu 1 á Red Bull Ring í Austurríki í gær. Pascal Wehrlein ók hraðast fyrir Mercedes á þriðjudag. McLaren rauf 100 hringja múrinn.

Vandi McLaren ekki allur hjá Honda

Þróunar- og varaökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne segir að til að komast aftur á toppinn þurfi bætingar á öllum sviðum. Skortur á vélarafli sé ekki eini vandinn.

Nico Rosberg átti daginn á Silverstone

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Hann rétt marði liðsfélaga sinn Lewis Hamilton á fyrri æfingunni.

Smedley: Við bönnuðum þeim ekki að keppa

Lewis Hamilton vann sinn annan breska kappakstur í röð og þriðja á ferlinum. Hann tók þjónustuhlé á hárréttu augnabliki. Hver sagði hvað eftir keppnina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×