Gagnrýni

Betri en sú fyrri en ekki gallalaus

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Darri Ingólfsson leikur aðalhlutverkið í myndinni og ferst það vel úr hendi.
Darri Ingólfsson leikur aðalhlutverkið í myndinni og ferst það vel úr hendi.
Borgríki 2: Blóð hraustra manna

Leikstjóri: Ólafur de Fleur

Aðalhlutverk: Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic og Hilmir Snær Guðnason.



Borgríki 2 er framhald myndarinnar Borgríki sem sýnd var árið 2011. Það er greinilegt að eitthvað hefur gerst í millitíðinni og karakterarnir hafa þróast aðeins síðan við sáum þá síðast.

Borgríki heillaði mig ekki mikið og fannst mér hún alltof hröð og skildi ég hvorki upp né niður í flestum persónunum. Í Borgríki 2 er hægt aðeins á atburðarrásinni, þó hún sé enn aðeins of hröð til að ganga fyllilega upp, og fá áhorfendur að kynnast karakterunum aðeins betur. Það fannst mér plús.

Darri Ingólfsson er eitt af nýju andlitunum í Borgríki 2. Íslendingar hafa lítið séð til Darra síðustu ár en hann hefur verið að gera það ágætt vestan hafs. Hann er með sterka nærveru á hvíta tjaldinu og nær að byggja karakter sinn upp á trúverðugan hátt. Hann hefur greinilega auga fyrir smáatriðum og er vel skólaður fyrir framan myndavélina. Ég keypti hans ákvarðanir og gjörðir og fannst mér hann skila sínu á sómasamlegan hátt.

Ágústa Eva kom mér mest á óvart. Mér fannst hún nánast óbærileg í Borgríki þar sem hún tjáði allar sínar tilfinningar og ákvarðanir með andlitinu. Það sama var ekki upp á teningnum í Borgríki 2. Henni hefur farið mikið fram og allt í einu varð lögreglukonan Andrea aðeins athyglisverðari persóna. Sympatískari.

Serbarnir tveir, Zlatko Krickic og Leo Sankovic, eru frábærir í sínum hlutverkum, þá sérstaklega Leo sem stelur oftar en ekki senunni. Aðrir leikarar standa sig með prýði og skila sínu verki á mannsæmandi hátt.

Hins vegar er handritið sjálft ekki nógu gott. Betra en handrit fyrri myndarinnar en samt fullt af gloppum. Ýmsar lausnir eru fullauðveldar sem gerir atburðarásina oft á tíðum frekar ótrúverðuga.

Eins og í fyrri myndinni skil ég oft og tíðum ekki hvaða tilgangi tímaflakkið þjónar heldur. Það bætir akkúrat engu við söguna.

En myndin heldur manni ágætlega og verð ég að gefa slagsmálaatriðunum stóran plús. Afskaplega vel útfærð og vel gerð. Þau hafa greinilega verið æfð í þaula og það sést.

Niðurstaða: Borgríki 2 er framför að mínu mati. Ágætlega heppnuð framhaldsmynd að vissu leyti sem heldur manni þokkalega vel þó hún sé langt frá því að vera gallalaus.


Tengdar fréttir

Krakkarnir hræddust ekki krimmann

Leo Sankovic leikur í glæpamyndinni Borgríki 2 sem er á leiðinni í bíó. Á meðan á tökunum stóð vann hann á frístundaheimili innan um sex til níu ára krakka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×