Viðskipti erlent

Betra að skera af sér hönd en samþykkja

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Yanis Varoufakis vill frekar skera af sér höndina en að samþykkja samninga sem innihalda ekki neyðaraðstoð.
Yanis Varoufakis vill frekar skera af sér höndina en að samþykkja samninga sem innihalda ekki neyðaraðstoð. fréttablaðið/epa
Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, sagði í viðtali við fréttamann sjónvarpsstöðvarinnar Bloomberg að hann vildi frekar skera af sér höndina en að samþykkja samning við lánardrottna Grikkja, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Seðlabanka Evrópu og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem felur ekki í sér neyðarhjálp.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur þau skilyrði að Grikkir samþykki umfangsmiklar breytingar í rekstri ríkisins áður en til nýrrar neyðaraðstoðar kemur. Kosið verður um þær breytingar sem lagðar eru til í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn.

Varoufakis sagði enn fremur að hann myndi segja af sér ef Grikkir kysu að samþykkja skilmálana.

„Við erum lýðræðissinnar. Við munum gera hvað sem í valdi okkar stendur til að ná samningum við lánardrottna okkar ef gríska þjóðin kýs að samþykkja,“ sagði Varoufakis.

„Kannski þyrftum við að stokka upp í ríkisstjórn Grikklands ef til samþykktar kæmi. Sum okkar þyldu það einfaldlega ekki,“ bætti hann við. Varoufakis kvaðst samt fullviss um að gríska þjóðin kysi að styðja ríkisstjórnina og segja nei við kröfum lánardrottna Grikklands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×