Viðskipti innlent

Bein útsending: Formaður rannsóknarnefndar situr fyrir svörum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Skýrslan var kynnt í morgun.
Skýrslan var kynnt í morgun. vísir
Kjartan Bjarni Björgvinsson, sem stýrir rannsókn á sölu Búnaðarbankans, mætir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar klukkan 12. Sýnt verður beint frá fundinum í spilaranum hér fyrir neðan.

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á erlendri þátttöku í kaupum á 45,8 prósenta eignarhlut í Búnaðarbankanum var kynnt í morgun. Niðurstaða nefndarinnar er afdráttarlaus; stjórnvöld voru skipulega blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar.

Þá segir í skýrslunni að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi í raun aldrei verið fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar eignarhlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram.  

Sem fyrr segir mun Kjartan Bjarni sitja fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar klukkan 12.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×