Viðskipti innlent

Bein útsending: 50 ára af­mælis­árs­fundur Lands­virkjunar

Landsvirkjun heldur opinn ársfund í Eldborgarsal Hörpu klukkan 14 í dag. Yfirskrift fundarins er Verðmæti til framtíðar en fyrirtækið fagnar einnig 50 ára afmæli sínu um þessar mundir. 

Fundurinn er í beinni útsendingu sem hægt er að fylgjast með hér á Vísi. Athugið að spilarinn hér fyrir ofan fer af stað í upphafi útsendingar.

„Á opnum ársfundi munum við fjalla um hvaða áhrif stofnun Landsvirkjunar hafði á íslenskt samfélag. Hvers vegna er raforka verðmæt vara? Hversu mikið viljum við virkja? Hvenær getum við greitt aukinn arð? Við stöndum frammi fyrir einstökum tækifærum til að skapa þjóðinni aukin verðmæti til framtíðar,“ segir í tilkynningu.



Dagskrá

Fundurinn hefst klukkan 14.

Hörður Arnarson forstjóri og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri bjóða gesti velkomna.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur ávarp.

Myndband - Umhverfisrannsóknir, þróun og bygging virkjana

Virkjanaframkvæmdir taka um fjögur ár á meðan undirbúningurinn tekur tugi ára. Starfsfólk Landsvirkjunar fjallar um mikilvægi þess að þekkja auðlindirnar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flytur ávarp.



Myndband - Orkuvinnsla og afhending

Landsvirkjun vinnur rafmagn allan sólarhringinn allan ársins hring. Örugg orkuvinnsla krefst mikillar samvinnu þar sem allir hafa sitt hlutverk.

Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður - Árangur og áskoranir í 50 ár



Myndband - Markaðssetning og viðskiptaþróun

Hvernig förum við að því að selja raforku? Starfsfólk Landsvirkjunar fjallar um sölu- og markaðsstarf fyrirtækisins og verðmæti íslenskrar orku.

Hörður Arnarson forstjóri - Verðmæti til framtíðar - í orku og náttúru Íslands



Mynd - Búrfell

Frumsýning heimildarmyndar um byggingu Búrfellsvirkjunar og aðdraganda að stofnun Landsvirkjunar 1. júlí 1965. Þjóðin hafði aldrei áður tekist á við jafn flókna framkvæmd, þeirra sem að henni komu biðu mörg krefjandi úrlausnarefni við að beisla orkuna í jökulánum.

Hörður Arnarson forstjóri og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri loka fundinum. 

Fundinum lýkur klukkan 16.



Almenningur er hvattur til að senda spurningar inn á fundinn með merkinu #LV50ÁRA á Twitter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×