Erlent

Bandarískur vígamaður ISIS gafst upp í Írak

Samúel Karl Ólason skrifar
Maður sem segist vera frá Bandaríkjunum gafst upp fyrir Peshmergasveitum Kúrda nærri Sinjar í Írak í dag. Hann reyndi fyrst að gefast upp í gærkvöldi, en þegar hann nálgaðist víglínu Kúrda var skotið á hann. Talið var að hann ætlaði að sprengja sig í loft upp. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ekki staðfest að maðurinn sé þaðan.

Samkvæmt AP fréttaveitunni sagðist hann upprunalega vera frá Palestínu. Hann heldur því einnig fram á myndbandi sem birt var í dag, þar sem hann hefur verið handsamaður.

Kúrdar segja manninn hafa barist fyrir ISIS í Írak en hershöfðinginn Feisal Helkani segir manninn heita Mohammed Jamal Amin. Í fórum hans fundust þrír símar, þrjú mismunandi skilríki, þar á meðal bandarískt ökuskírteini, og peningar.

Á ökuskírteininu stóð hins vegar Mohammed Jamal Khweis. AP ræddi við föður hans sem sagðist vera á leið á fund með embættismönnum í Bandaríkjunum. Hann brást reiður við spurningum um son sinn og sagði hann vera fullorðinn mann. Það væri ósanngjarnt að spyrja sig út í soninn.

Yfirvöld í Bandaríkjunum vinna nú að því að staðfesta að maðurinn sé frá Bandaríkjunum.

Sameinuðu þjóðirnar telja að um 30 þúsund erlendir vígamenn starfi með ISISal-Qaeda og öðrum vígahópum í Sýrlandi. ISIS hafa tapað miklu svæði í Írak undanfarna mánuði og Kúrdar segja að sífellt fleiri vígamenn gefist upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×