Viðskipti innlent

Bandarískur fjárfestingasjóður í hóp stærstu hluthafa N1 með 2,7 prósent 

Hörður Ægisson skrifar
Hlutabréfaverð N1 hækkaði stöðugt
á árinu 2016 en það sem af er ári hafa
þau lækkað um 5%.
Hlutabréfaverð N1 hækkaði stöðugt á árinu 2016 en það sem af er ári hafa þau lækkað um 5%. Vísir/Vilhelm
Fjárfestingasjóður á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Wellington Management keypti undir lok síðasta mánaðar rúmlega 2,7 prósenta hlut í olíufélaginu N1. Þannig er sjóðurinn The Wellington Trust Company National Association orðinn ellefti stærsti hluthafi félagsins og miðað við gengi bréfa N1 við lokun markaða í gær nemur markaðsvirði hlutarins um 825 milljónum.

Fjárfestingasjóðir Wellington Management, sem er eitt stærsta eignastýringarfyrirtæki heims með eignir í stýringu upp á samtals 1.000 milljarða Bandaríkjadala, hafa að undanförnu fjárfest í fleiri skráðum félögum á Íslandi, samkvæmt heimildum Markaðarins. Þær fjárfestingar hafa hins vegar ekki verið af sömu stærðargráðu og kaupin í N1 og því ekki skilað þeim á lista yfir stærstu hluthafa félaganna.

The Wellington Trust Company keypti í N1 samtímis því að Helgi Magnússon, varaformaður stjórnar N1, og félag í eigu eiginkonu Jóns Sigurðssonar, stjórnarmanns í N1, seldu hluta af bréfum sínum í félaginu á síðustu dögum febrúarmánaðar. Þannig seldi félagið Hofgarðar, sem er í eigu Helga, samtals þrjár milljónir hluta þann 28. febrúar á genginu 133 krónur á hlut. Félagið Helgafell, sem Jón fer fyrir sem framkvæmdastjóri, hafði skömmu áður, eða 23. febrúar, selt í N1 fyrir 540 milljónir.

Miklar sveiflur hafa verið á gengi bréfa N1 að undanförnu og þannig lækkaði hlutabréfaverð félagsins um 12 prósent í fyrradag. Sú lækkun var rakin til þess að Eggert Kristó fersson, forstjóri félagsins, hafði eftir lokun markaða síðasta föstudag selt helming hlutafjáreignar sinnar fyrir 9,6 milljónir. Gengi bréfa N1 tók hins vegar mikinn kipp í gær og hækkaði um rúmlega 5,6 prósent. Það sem af er ári hafa bréfin lækkað í verði um liðlega 5,4 prósent en litið til síðustu tólf mánaða hefur gengi bréfanna hækkað um meira en 60 prósent.

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×