Golf

Bandaríkjamenn bíta frá sér á Gleneagles

McIlroy og Poulter fagna pútti í morgun.
McIlroy og Poulter fagna pútti í morgun. AP/Getty
Bandaríkjamenn girtu sig í brók á þriðja hring í Ryder-bikarnum sem fram fer á Gleneagles þessa stundina en þeir sigruðu tvö og hálft stig af fjórum mögulegum í fjórboltanum í morgun.

Ungstirnin Jordan Spieth og Patrick Reed fengu tækifærið á ný eftir góða frammistöðu í gær og nýttu það vel en þeir sigruðu Thomas Björn og Martin Kaymer nokkuð örugglega í leik sem kláraðist á 15. holu.  

Þá náðu Jim Furyk og Hunter Mahan að næla sér í sitt fyrsta stig í Rydernum í ár en þeir báru sigurorð af Lee Westwood og Jamie Donaldson í leik sem tókst aldrei að verða spennandi.

Fyrir Evrópuliðið voru Justin Rose og Henrik Stenson enn á ný frábærir en þeir hafa sigrað alla þrjá leiki sína hingað til. Í morgun urðu Bubba Watson og Matt Kuchar fyrir barðinu á þeim en Stenson og Rose sigruðu á 16. holu og voru þeir þá á samtals 12 höggum undir pari.

Mesta spennan var í leik Rory McIlroy og Ian Poulter gegn Jimmy Walker og Rickie Fowler en þeir síðarnefndu áttu tvær holur á Evrópumennina þegar að það voru aðeins fjórar eftir. Þá setti Ian Poulter í fluggírinn og nældi sér í tvo fugla í röð til þess að jafna leikinn en hann endaði að lokum með jafntefli.

Evrópuliðið leiðir eins og er með sex og hálfum vinningi gegn fimm og hálfum hjá því bandaríska. Margar spennandi viðureignir eru á dagskrá eftir hádegi en hér fyrir neðan er hægt að sjá hverjir mæta hverjum í fjórmenningnum.

Jamie Donaldson / Lee Westwood gegn Zach Johnson / Matt Kuchar

Sergio Garcia / Rory McIlroy gegn Jim Furyk / Hunter Mahan

Martin Kaymer / Justin Rose gegn Patrick Reed / Jordan Spieth

Victor Dubuisson / Graeme McDowell gegn Rickie Fowler / Jimmy Walker




Fleiri fréttir

Sjá meira


×