Viðskipti innlent

Aurum-málinu frestað þar sem skjölum var ábótavant

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding eru tveir sakborninga í Aurum-málinu.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding eru tveir sakborninga í Aurum-málinu. vísir/gva
Málflutningi um kröfu sérstaks saksóknara þess efnis að Guðjón St. Marteinsson víki sem dómari í Aurum-málinu var frestað. Fyrirtaka málsins var í morgun og var fyrirhugað að málflutningur færi fram en var því slegið á frest þar sem verjendur höfðu ekki öll gögn sem ákæruvaldið byggði á.

Er málið var tekið fyrir í morgun lagði sérstakur saksóknari fram gögn sem flest voru lögð fyrir í Hæstarétti fyrr á þessu ári. Einnig voru nefnd til sögunnar gögn sem send voru með tölvupósti þann 9. júní síðastliðinn.

„Þið kannist allir við þessi gögn, ekki satt? Þið eruð hér allir tilgreindir í cc,“ spurði dómarinn verjendurna en enginn þeirra kannaðist við að hafa fengið gögnin send í tölvupósti.

Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, sagði að ekkert yrði vísað til þeirra gagna í málflutningnum. Hann lagði fram önnur skjöl sem hann hugðist nýta en þeirra á meðal eru endurrit af hádegisfréttum RÚV og úrklippur úr blaðagreinum sem birtust ýmist í Fréttablaðinu eða Morgunblaðinu.

„Ég veit hver dómkrafan er en ég hef ekki fengið eitt einasta gagn er snýr að henni,“ sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, er hann lagði fram bókun.

Hann sagði að það gæti ekki samræmst reglum að mæta til þinghalds án þess að nokkuð hafi verið lagt fram um það sem gera á kröfu um. Undir þetta tóku verjendur annara sakborninga. Saksóknari var því ekki mótfallinn að málinu yrði frestað um nokkra daga og var það því niðurstaðan.

Í málinu eru þeir Jón Ásgeiri Jóhannessyni, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Snýr ákæran að sex milljarða króna láni sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. Vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd.

Sakborningarnir voru sýknaðir í héraðsdómi síðasta sumar en dómurinn var ómerktur af Hæstarétti sökum ættartengsla Sverris Ólafssonar, sérfróðs meðdómanda í málinu, við Ólaf Ólafsson, oft kenndur við Samskip, en Sverrir og Ólafur eru bræður. Ólafur var sakfelldur fyrir hlutdeild í umboðssvikum í Al-Thani málinu.

Málið verður tekið fyrir að nýju mánudaginn 14. september. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×