Viðskipti innlent

Atlantsolía lækkar enn meira

Atlantsolía, sem lækkaði verð á bensíni og dísilolíu um tvær krónur á lítrann í gær, lækkaði bensínlítrann um tvær krónur til viðbótar eftir hádegi í dag og dísilolíuna um 3 krónur og hefur hún því lækkað um fimm krónur á einum sólarhring hjá félaginu.

Bensínlítrinn hjá Atlantsolíu fór hæst í 251 krónu um miðjan júní er  nú kominn niður í 223 kónur og hefur því lækkað um 28 krónur síðan þá. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×