Innlent

Róbert beitir sér fyrir samstarfi við virta sjúkrastofnun í Bandaríkjunum

Hugsanlegt er að Háskólinn í Reykjavík og heilbrigðisstofnanir hér á landi fari í samstarf við eitt virtasta sjúkrahús Bandaríkjanna í tengslum við rannsóknir á brjóstakrabbameini.

Þetta er ástæða þess að Róbert Wessmann, stjórnarformaður Salt Investments og fyrrverandi forstjóri Actavis, sást skoða Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á dögunum. Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, greindi frá því á Alþingi í morgun að þekktur auðmaður hefði sést á stofnuninni í fylgd með fulltrúum heilbrigðsráðuneytisins og átti hún þar við Róbert. Spurði hún ráðherra hvað hann hefði verið að gera þar en ráðherra sagðist ekki getað svarað fyrir einstakar heimsóknir manna.

Styrkja brjóstakrabbameinsrannsóknir

Róbert Wessmann segir í samtali við Vísi að tilviljun ein hafi ráðið því að hann hafi sést í Keflavík en hann hafi að undanförnu skoðað aðstöðu hér á landi vegna hugsanlegs samstarfs Háskólans í Reykjavík og sjúkrastofnana við eitt virtasta sjúkrahús Bandaríkjanna.

„Ég hef haft áhuga á heilsugeiranum og ég og konan mín höfum verið að styrkja rannsóknarverkefni í tengslum við brjóstakrabbameinsaðgerðir. Það snýr að þjónustuþörf kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein og hvernig sé hægt að hlúa betur að þeim. Það er von á niðurstöðum úr því verkefni fljótlega," segir Róbert.

Hann segir hins vegar að hann hafi einnig haft frumkvæði að því að fá eitt af leiðandi sjúkrahúsum Bandaríkjanna í rannsóknarsamstarf við Háskólann í Reykjavík með aðkomu heilbrigðsstofnana. Ef af þessu verði skapi það störf hér á landi og skili niðurstöðum sem myndu nýtast í heilbrigðisþjónustu bæði hér á landi og um allan heim. „Ef þetta yrði til þess auka samstarf við rannsóknarstofnanir erlendis og byggja upp atvinnu hér þá yrði maður glaður," segir Róbert.

Hefur áhuga á loftræstikerfum

Róbert vill ekki gefa of mikið upp um rannsóknina þar sem ekki er búið ganga frá samstarfssamningum en Háskólinn í Reykjavík er meðal fimm aðila sem kemur til greina hjá hinni virtu bandarísku stofnun. Aðspurður vonast Róbert til að að það skýrist á næstu vikum hvort af samstarfinu verði.

Í frétt Vísis af málinu kom fram að Róbert hefði sýnt skurðstofunum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sérstakan áhuga. „Ég hef aldrei áður komið inn á skurðstofu. Ég hef byggt lyfjaverksmiðjur um allan heim og þar er mikil áhersla á loftræstikerfið og ég vildi skoða hvernig þeim málum væri háttað á skurðstofum," segir Róbert.




Tengdar fréttir

Segir Róbert Wessmann hafa skoðað skurðstofur

Róbert Wessmann, stjórnarformaður Salt Investments, var á ferðinni á dögunum með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins að skoða Heilbrigðsstofnun Suðurnesja og sýndi skurðstofum sem til stendur að loka mikinn áhuga. Þetta fullyrðir Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Segir auðmann hafa sýnt skurðstofum á Suðurnesjum áhuga

Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði heilbrigðsráðherra um það á Alþingi í dag í hvaða erindagjörðum einn af þekkstu auðmönnum landsins hefði verið þegar hann skoðaði starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins á dögunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×