Innlent

Sprautunálar í Laugardal - þrjú sjónarhorn einnar manneskju

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Jórunn Ósk Frímannsdóttir

Vísir náði tali af Jórunni Ósk Frímannsdóttur, formanni Knattspyrnufélagsins Þróttar, borgarfulltrúa og hjúkrunarfræðingi, vegna sprautunála og ónæðis í Laugardalnum sem fjallað var um á síðunni á föstudaginn. Hlekkur að þeirri frétt er hengdur neðan við þessa. Álits Jórunnar var leitað út frá öllum ofantöldum hlutverkum hennar og byrjað á íþróttafélagsformanninum.

Jórunn Frímannsdóttir, formaður Þróttar

„Besta forvörnin er í rauninni sú að það sé fólk í dalnum, börnin fari þar um milli skóla og íþróttastarfs og nógu mikið sé af þeim," segir Jórunn og bætir því við að hvað sprautunálar á víðavangi snerti sé sá vandi engan veginn einskorðaður við Laugardalinn, þær finnist í raun út um allt. „Á leikskólunum er farið yfir svæðið á morgnana þegar fólk mætir vegna þess að þar hefur það ítrekað komið upp að sprautur og önnur verkfæri eiturlyfjaneytenda finnist," segir Jórunn enn fremur. Hún segir starfið hjá Þrótti vera með miklum blóma og aðstandendur félagsins horfi bjartsýnir fram á næsta ár.

Jórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi

„Ég svara svo sem ekkert öðruvísi sem borgarfulltrúi," segir Jórunn. „Í mínum huga er þetta vandi sem við eigum við að glíma hér í borginni. Við þurfum að fræða unga fólkið okkar um að það sé mikilvægt að koma ekki nálægt svona hlutum og láta vita af þeim. Við þurfum að passa næsta nágrenni barna okkar með tilliti til þessa," segir hún og nefnir í framhaldinu að aukin löggæsla sé ekki endilega lausnin heldur að fólk sé á ferli á svæðinu. „Ég fer með hundinn minn í göngutúra þarna á næstum hverjum degi og maður hefur visst eftirlit á sínu svæði og það er æskilegt að borgarbúar hafi það almennt."

Jórunn Frímannsdóttir hjúkrunarfræðingur

„Það er mikilvægast að enginn komi nálægt þessum tækjum. Þetta eru nálar sem hafa farið inn í blóðrásarkerfi einstaklinga sem geta verið sýktir. Það allra mikilvægasta er því að koma ekki nálægt þessu heldur láta kyrrt liggja nema fólk sé með viðeigandi hlífðarbúnað eins og hanska og setji nálarnar þá beint í þar til gerð ílát," segir hjúkrunarfræðingurinn, borgarfulltrúinn og Þróttarformaðurinn að skilnaði.










Tengdar fréttir

Foreldrar brýni fyrir börnum að handfjatla ekki sprautunálar

„Við höfum bent foreldrum á það og ég ítreka það hér að brýna það fyrir börnum sínum að vera ekki að handfjatla hluti eins og sprautur eða nálar heldur hafa strax samband við lögreglu. Við komum þá og tökum þessa hluti í okkar vörslu og eyðum þeim,

Starfsfólk Laugarnesskóla ekki á nálum

„Það er langt um liðið síðan við höfum fundið nálar á skólalóðinni,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla, sem lætur fréttir af skálmöld og sprautunálum í Laugardalnum ekki raska ró sinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×