Einar S. Einarsson var í forsvari hópsins sem beitti sér fyrir því að Bobby Fischer fengi lausn úr fangelsi í Japan og íslenskan ríkisborgararétt. Hann kynntist Fischer náið á þeim þremur árum sem liðin eru síðan hann kom hingað til lands. „Bobby Fischer var að mínu mati meistari meistarana í skák," segir Einar í samtali við Vísi. „Hann kom Íslandi á kortið, svo einfalt er það. Þegar hann tefldi hér við Spassky 1972 var Ísland óþekkt í heiminum og Fischer breytti því á skammri stund."
Að sögn Einars verður dánarorsök Fischers ekki gefin upp að svo stöddu. Vinkona hans, Miyoko Watai, var í heimsókn hjá honum yfir áramótin og hún er nýfarin af landi brott. Einar sagði að verið væri að ná sambandi við hana til þess að segja henni fréttirnar og þangað til yrði ekki nánar greint frá andláti Fischers. „Það voru ákveðnir hlutir sem höfðu verið að hrjá hann en þetta bar mjög fljótt að og var óvænt," segir Einar.
„Ég kynntist honum ekki neitt fyrr en við hófum baráttuna fyrir því að frelsa hann úr þessari dýflissu í Japan," segir Einar. „Hann var séní og hann sagði mér nú einu sinni að það hefði bara verið tilviljun að hann lagði skákina fyrir sig en ef hann hefði ekki gert það þá hefði hann einfaldlega verið séní á einhverju öðru sviði," segir Einar.
„Hann lét vel af landi og þjóð," segir Einar aðspurður hvernig Fischer hefði látið af dvöl sinni hér á landi. „Hann var náttúrrulega á sinn hátt innilokaður hér á íslandi. Það var vitað að Bandaríkjamenn höfðu lýst eftir honum og talið hann óæskilegan. Hann hefði gjarnan viljað ferðast út fyrir landsteinana og honum fannst hann vera innikróaður hérna en þrátt fyrir það lét hann alltaf vel af dvöl sinni hér og kynnum sínum af landsmönnum," segir Einar S. Einarsson, formaður RJF hópsins.