Innlent

Heiðar Már skattakóngur

Í Reykjavík trónir á toppnum, Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings en opinber gjöld hans á síðasta ári námu rúmum 400 milljónum króna. Næstur á eftir honum kemur Hannes Þór Smárason, forstjóri FL Group með tæpar 377 milljónir króna og þriðja sætið vermir Ingunn Gyða Wernesdóttir með rúmar 287 milljónir krónur og eru þessi þrjú jafnframt skattakóngar landsins alls.

Baldur Örn Guðnason, forstjóri Eimskips, er sá einstaklingur á Reykjanesi sem greiðir hæstu opinberu gjöldin samkvæmt upplýsingum frá skattstjóranum í Reykjanesumdæmi, en Baldur greiðir rúma 121 milljón króna. Í öðru sæti er Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi stjórnarformaður Toyota, með rúmar 104 milljónir og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis er í þriðja sæti en hann greiðir rúma 71 milljón í opinber gjöld. Athygli vekur að fjórir hæstu greiðendurnir eru búsettir á Seltjarnarnesi, en í fjórða sæti er Jón Sigurðsson, með 64 milljónir.

Reykvíkingar verma líka þrjú efstu sætin ef litið er á landið allt. Heiðar Már er sem fyrr í fyrsta sæti, Hannes Þór í því öðru og Ingunn Gyða í því þriðja. Í fjórða sæti situr svo Baldur Örn úr Reykjanesumdæmi og í því fimmta er Arngrímur Jóhannsson, Akureyri áður eigandi Aktavis.

Athygli vekur að ríkasti Íslendingurinn, Björgólfur Thor Björgólfsson, er ekki meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda á Íslandi. Eignir Björgólfs eru metnar vel á þriðja hundrað milljarða íslenskra króna. Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Björgólfs, segir að Björgólfur hafi ekki haft búsetu á Íslandi í 15 ár. Einu launuðu störfin sem Björgólfur hafi á Íslandi séu vegna stjórnarformennsku í Actavis og Straumi-Burðarás, en fyrir þau fái hann greitt um kr. 900 þúsund á mánuði. Hann greiðir skatt af því.

Sjá sjónvarpsfrétt

Fleiri fréttir

Sjá meira

×