Erlent

Á von á barni með sex konum

X 6
X 6

Bandaríski plötuútgefandinn Rickey Lackey á von á barni með sex konum, að sögn blaðsins Cincinnati Enquierer. Þetta kom fram í réttarhöldum yfir hinum 25 ára gamla Rickey, sem hafði verið lögsóttur vegna 200 þúsund króna fjársvika. Hann hafði hinsvegar þegar borgað peningana til baka.

Dómarinn, Melba Marsh, spurði Rickey hvort hann ætti einhver börn, og hann svaraði því til að hann ætti ekkert, en sex á leiðinni. Dómarinn spurði þá hvort hann hyggðist kvænast þessari konu sem gengi með sex börn hans. Blaðið segir að svitinn hafi sprottið fram á enni hans þegar hann úrskýrði að hann ætti von á börnunum sex með sex konum.

Dómarinn sleppti Rickey með áminningu vegna fjársvikamálsins og getur hann því verið viðstaddur hina gleðilegu viðburði í lífi sínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×