Handbolti

Arnór Atla: Fáranleg trú í þessu liði

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Arnór Atlason í ham.
Arnór Atlason í ham. Mynd/Vilhelm
„Þetta verður ekkert mikið stærra en þetta. Maður er tiltölulega hátt uppi núna og leyfir sér að fagna þessu aðeins," sagði brosmildur Arnór Atlason sem var ánægður með karakterinn í íslenska liðinu.

„Við sýndum karakterinn strax í fyrstu vörninni. Það sem við lögðum upp með að gera gekk hér upp og menn fengu mikið sjálfstraust með góðri byrjun. Annars vorum við talsvert sterkari og þeir áttu helst möguleika í okkur einum fleiri. Við getum verið stoltir af þessum leik. Maður heyrði að Pólverjarnir hefðu sagt að þeir væru mjög sáttir við að mæta okkur og héldu að þetta yrði eitthvað auðvelt. Þeir fengu það til baka í dag," sagði Arnór sem nýtur þessa Ólympíuævintýris í botn.

„Þetta er ofboðslega gaman og allir að leggja sitt af mörkum. Liðið er þess utan vel undirbúið og við erum búnir að fara á óteljandi marga fundi og það skilar sér. Það er fáranleg trú í þessu liði og við þurfum að vinna einn leik í viðbót til að fá verðlaun á Ólympíuleikum. Það er toppurinn í þessari íþrótt."




Tengdar fréttir

Ísland spilar um verðlaun á Ólympíuleikunum

Ísland vann glæsilegan sigur á Pólverjum í fjórðungsúrslitum handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking, 32-30. Ísland spilar þar með um verðlaun á leikunum.

Alexander: Ég trúi þessu varla

„Þvílíkur leikur og við höfðum trú á okkur allan tímann. Það lögðust allir á eitt því við viljum svo innilega láta drauminn rætast sem er að vinna medalíu. Við sýndum hverslags lið við erum í þessum leik. Við erum með rosalega gott lið,“ sagði járnmaðurinn Alexander Petersson og brosti allan hringinn.

Sjónvarpsviðtal Óla: Líður eins og Morfeus

Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði fór í sjónvarpsviðtal á Rúv skömmu eftir leik þar sem hann leyfði landsmönnum að kynnast mögnuðu hugsunarflæði sínu.

Guðjón Valur: Erum ekki hættir

„Venjulega segir maður bara tvö stig og ekkert annað en þessi sigur þýðir að við erum á leið í undanúrslit á Ólympíuleikum og það er einfaldlega frábær tilfinning,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson að vonum glaður eftir sigurinn á Pólverjum.

Sigfús: Medalían er á leiðinni

„Mér líður rosalega vel og er ekkert smá stoltur af strákunum. Diddi [Ingimundur] og Sverre voru að vinna eins og brjálaðir menn í dag. Drápu allt sem kom inn á miðjuna og Bjöggi alveg brjálaður á bakvið. Það voru allir flottir í dag,“ sagði skógarbjörninn Sigfús Sigurðsson kampakátur eftir sigurinn á Pólverjum.

Logi: Skemmtilegasta stund lífs míns

„Það er óhætt að segja að maður sé hrikalega glaður en maður tekur þessu með jafnaðargeði. Við megum ekki missa okkur í gleðinni. Fagna þessu smá og fara svo að hugsa um næsta verkefni,“ sagði stórskyttan Logi Geirsson og brosti allan hringinn. Logi átti fínan leik eins og allir strákarnir og skorað fjögur flott mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×