Handbolti

Arnór: Króatarnir eru brothættir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Maður hefur átt betri nætur. Ég verð að viðurkenna það,“ sagði Arnór Atlason daginn eftir tapið gegn Hvíta-Rússlandi en hann er væntanlega búinn að hrista vonbrigðin af sér í dag.

„Við höfum verið í þessu áður og vitum að það kemur alltaf nýr leikur. Það var því bara strax í endurheimt og gera sig kláran í næsta leik.“

Sjá einnig: Aron Pálmars: Ætlum að berja frá okkur

Arnór hefur leikið virkilega vel fyrir landsliðið á mótinu. Hann þekkir þessa stöðu sem liðið er komið í.

„Við erum að fara að mæta frábæru liði en munum leggja allt í leikinn. Því miður þekkjum við þessa stöðu. Þó svo við gerum það er ekkert sjálfgefið að við vinnum þennan leik. Við vitum að við þurfum að eiga rosalega góðan leik til þess að vinna. Okkur hefur oft tekist að framkalla mjög góðan leik þegar þess er virkilega þörf. Vonandi verður það líka upp á teningnum núna.“

Sóknarleikur íslenska liðsins var frábær gegn Hvít-Rússum. Að skora 38 mörk og tapa er fáheyrt.

Sjá einnig: Guðjón Valur: Vil spila leiki sem eru upp á meira en kók og prins

„Ég væri feginn að við gætum gleymt þessum leik sem fyrst og við getum það ef við eigum góðan leik gegn Króötum. Þeir eru enn með heimsklassalið og leikmennirnir flestir eru í heimsklassaliðum. Að þeir hafi tapað gegn Noregi sýnir að þeir eru brothættir og ekki jafn góðir og þeir hafa verið. Við eigum fínan möguleika.

„Við vissum alltaf að þetta yrði mjög mikilvægur leikur og við getum enn farið með mjög fína stöðu inn i milliriðilinn. Það er nú eða aldrei hjá okkur og við leggjum allt undir. Við ætluðum að spila átta leiki á þessu móti en ekki þrjá.“

Viðtalið við Arnór má sjá í heild sinni hér að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Ísland hefur aldrei unnið Króatíu á stórmóti

Íslenska handboltalandsliðið þarf að endurskrifa söguna ef liðið ætlar að fá tvö stig út úr leiknum á móti Króatíu í kvöld í lokaumferð B-riðils Evrópumótsins í handbolta í Póllandi.

Aron þjálfari: Því miður fórum við íslensku leiðina

"Það þurfti að skoða margt í nótt og þá aðallega varnarleikinn,“ segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari en hann svaf líklega ekkert sérstaklega mikið í nótt eftir tapið gegn Hvíta-Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×