Handbolti

Guðjón Valur: Vil spila leiki sem eru upp á meira en kók og prins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn er vel stemmdur og klár í risaleikinn gegn Króatíu í kvöld.

Ég veit ég auglýsti eftir einum allt eða ekkert leik en hann kemur aðeins fyrr en ég átti von á,“ segir Guðjón Valur og brosir. „Þetta er allt eða ekkert. Ég hlakka bara til. Þetta verður gaman.“

Sjá einnig: Ísland hefur aldrei unnið Króatíu á stórmóti

Guðjón Valur þekkir þessa stöðu mætavel enda búinn að vera lengi í bransanum og upplifað ansi margt á löngum, og glæstum, landsliðsferli.

„Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum og ég ætla rétt að vona að það hjálpi okkur. Við ætluðum að breyta þessu að fara alltaf Krýsuvíkurleiðina. Tapa leikjum sem við eigum að vinna og vinna leiki sem flestir halda að við töpum. Þetta virðist vera íslenska leiðin. Margir okkar hafa upplifað svona aðstæður," segir Guðjón Valur og rifjar upp ævintýrin á HM 2007 og EM 2010.

Króatar eru líka særðir og verða að berjast fyrir lífi sínu. Guðjón býst við átökum.

„Ég geri ráð fyrir því. Það verður ekkert gefins hjá Króötunum en vonandi heldur ekki hjá okkur. Það er út af svona leikjum sem maður er að leggja þetta á sig. Að djöflast einn þegar enginn er að horfa. Að fá að spila leiki sem skipta máli og eru upp á eitthvað meira en kók og prins. Það gerir þetta enn skemmtilegra,“ segir Guðjón Valur en hann gefst aldrei upp fyrr en í fulla hnefana.

Sjá einnig: Gæti verið betra að gera jafntefli en vinna

„Auðvitað var maður fúll og pirraður eftir tapið. Svo reynir maður að halda áfram. Það er alveg magnað hvað sólin kemur upp næsta dag. Það taka alltaf aðrir leikir við.“

Guðjón ber mikla virðingu fyrir króatíska liðinu enda er það firnasterkt. Það er þó ekki ósigrandi.

„Þeir eru mjög hæfileikaríkar en maður hefur séð smá brotalamir hjá þeim. Þeir virðast ekki vera með sömu festu og sjálfsöryggi og þeir hafa verið með síðustu árin. Það er eitthvað sem við verðum að nýta okkur en þetta er ekki lið sem er hægt að vanmeta á nokkurn hátt.“

Sjá má viðtalið við Guðjón í heild sinni hér að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Alexander: Búinn að spila aðeins of mikið

Alexander Petersson hefur spilað mun meira á Evrópumeistaramótinu en til stóð. Hann tjáði íþróttadeild fyrir mót að hann myndi spila korter í leik en það hefur engan veginn gengið eftir.

Aron þjálfari: Því miður fórum við íslensku leiðina

"Það þurfti að skoða margt í nótt og þá aðallega varnarleikinn,“ segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari en hann svaf líklega ekkert sérstaklega mikið í nótt eftir tapið gegn Hvíta-Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×