Viðskipti erlent

Argentínumenn nálægt öðru greiðslufalli

Atli Ísleifsson skrifar
Efnahagsmálaráðherra Argentínu fundar nú með þeim fjárfestum sem þreyja þorrann í samningaviðræðum við argentísk stjórnvöld í New York.
Efnahagsmálaráðherra Argentínu fundar nú með þeim fjárfestum sem þreyja þorrann í samningaviðræðum við argentísk stjórnvöld í New York. Vísir/AP
Efnahagsmálaráðherra Argentínu mun halda samningaviðræðum áfram í dag í síðustu tilraun sinni til að forða landinu frá greiðslufalli.

Axel Kicillof átti í viðræðum við þá fjárfesta sem þreyja þorrann í New York í gærkvöldi og lauk þeim án samkomulags. Fjárfestarnir krefjast endurgreiðslu á 1,3 milljörðum Bandaríkjadala og hefur bandarískur dómari úrskurðað að umræddir fjárfestar fái greitt á miðvikudagskvöld, náist ekki samkomulag um annað.

Í frétt BBC segir að orðræða argentínskra stjórnvalda hafi einkennst af því að lýsa þessum eigendum ríkisskuldabréfa, sem ekki hafa samþykkt niðurfærslu á skuldunum og krafist þess að fá þær greiddar að fullu, sem hrægömmum. Hafi þeir keypt skuldabréfin ódýrt á þeim tíma þegar Argentína gekk í gegnum sérstaklega erfiða tíma og ætlað sér að nýta slæma skuldastöðu Argentínu til að hagnast gríðarlega.

Ekki eru nema tólf ár síðan argentínsk stjórnvöld lýstu landið gjaldþrota og var skuldum þess þá breytt með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×