Erlent

Árásarmaðurinn í Berlín sagður 23 ára Pakistani

Atli Ísleifsson skrifar
Alls tólf eru látnir og 48 særðir eftir að maðurinn ók vörubíl inn í fjölfarinn jólamarkað í Charlottenburg-hverfinu í Berlín í gær.
Alls tólf eru látnir og 48 særðir eftir að maðurinn ók vörubíl inn í fjölfarinn jólamarkað í Charlottenburg-hverfinu í Berlín í gær. Vísir/AFP
Þýska blaðið Die Welt greinir frá því að árásarmaðurinn í Berlín sé 23 ára maður frá Pakistan. Blaðið kallar hann Naved B og segir fæðingardag hans vera 1. janúar 1993 og á hann að hafa komið til landsins í febrúar á þessu ári.

Alls tólf eru látnir og 48 særðir eftir að maðurinn ók vörubíl inn í fjölfarinn jólamarkað í Charlottenburg-hverfinu í Berlín í gær. Þýska lögreglan telur nær fullvíst að um sé að ræða hryðjuverkaárás og rannsakar árásina sem slíka. 

Die Welt greinir frá því að öryggissveitir hafi gert áhlaup inn í flugskýli á Tempelhof-flugvelli í Berlín þar sem maðurinn er sagður hafa dvalið ásamt öðrum flóttamönnum.

Maðurinn er sagður þekktur hjá lögreglunni fyrir smáglæpi en aldrei verið talinn hafa tengsl við hryðjuverkasamtök.

Hann komst undan eftir árásina en var handtekinn nokkru síðar, um tveimur kílómetrum frá jólamarkaðnum. Sjónarvottur á að hafa elt manninn er hann lagði á flótta frá staðnum og tókst lögreglu loks að hafa uppi á honum. Árásarmaðurinn á að hafa farið út úr bílnum og hlaupið inn í garðinn Tiergarten.

Einn maður fannst látinn í flutningabílnum; pólskur ríkisborgari en talið er að árásarmaðurinn hafi myrt hann og stolið bílnum.  Eigandi flutningafyrirtækisins og frændi bílstjórans staðfesti við lögreglu að ekki hafi náðst í hann frá klukkan fjögur í gærdag.  Flutningabíllinn var á pólskum númerum og inni í honum voru stálbitar, en losa átti farminn í dag. 

Jólamarkaðurinn í Charlottenburg er afar vinsæll enda skammt frá helstu verslunargötu borgarinnar, Kurfürstendamm.

Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi lent í árásinni en utanríkisráðuneytið hvetur alla Íslendinga í Berlín sem ekki hafa látið vita af sér, að gera það svo fljótt sem auðið er.


Tengdar fréttir

Hryllingur á jólamarkaði í Berlín

Minnst níu létust þegar flutningabíll ók á hóp fólks á jólamarkaði í Berlín í gær. Íslendingar í borginni segja fólk í sjokki vegna atviksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×