Fréttamynd

Sögu­legri skráningu SpaceX lokið

SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þurfi að taka leiðin­legar á­kvarðanir

Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hefja rann­sókn á Ryanair

Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð.

Viðskipti erlent


Fréttamynd

Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hag­vexti og meiri verð­bólgu

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur lokið árlegri úttekt sinni á íslensku efnahagslífi, telur stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafi launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hafi aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Grát­legt hversu miklum peningum fólk tapar í fjár­svikum

Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir mikilvægt að fólk andi þrisvar og lesi vel skilaboð sem komi þegar fólk notar rafræn skilríki. Fjársvik hafa margfaldast síðustu ár og hún segir stöðuna sérstaklega slæma síðustu vikur. Brynja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýjar í­búðir í Firði: Lúxus að búa í mið­bæ Hafnar­fjarðar

Mörg okkar dreymir um að geta gengið út úr húsi á morgnana, gripið nýbakað brauð í bakaríinu, sest á kaffihús eða rölt niður að höfninni án þess að þurfa að setjast upp í bíl. Nú gefst tækifæri til að láta þann draum rætast í nýjum íbúðum sem eru komnar í sölu í miðbæ Hafnarfjarðar að Strandgötu 26. Opið hús í dag, fimmtuag 11. júní og á laugardaginn 13. júní.

Samstarf
Fréttamynd

Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöru­verði

Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar borgi 55 prósent meira fyrir mat­vöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.

Neytendur
Fréttamynd

Fjár­festu í karllægum fé­lögum og báðu síðan um fund með for­stjóranum

Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og fjárfestir, tók við formennsku Jafnvægisvogar FKA í febrúar á þessu ári. Hún segist sérstaklega horfa til þess að fá fleiri skráð félög, lífeyrissjóði, ríkisfyrirtæki og sveitarfélög til að skrá sig í Jafnvægisvogina, enda sé þetta hópur vinnustaða sem samfélagið horfi til sem fyrirmynda og þurfi að sýna gott fordæmi.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Hækka vöru­verð: „Um­hverfið mjög krefjandi“

Hækkandi ál- og olíuverð er farið að skila sér í verðhækkunum á mat- og drykkjarvöru, að sögn framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar en félagið tilkynnti nýlega um verðhækkanir á öllum sínum framleiðsluvörum, svo sem gosdrykkjum. Rekstrarumhverfið sé orðið krefjandi en hann sé áfram bjartsýnn.

Viðskipti innlent