Viðskipti erlent

Apple selur lítið notaða iPhone síma með afslætti

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Allar endurgerðirnar eru ólæstar og án sím korta
Allar endurgerðirnar eru ólæstar og án sím korta Vísir/Getty
Apple hefur hafið sölu á iphone símum á vefsíðu sinni sem skilað hefur verið inn af neytendum. Neytendur hafa því nú tækifæri á því að kaupa sér ódýrari iPhone sem er þó í ábyrgð í eitt ár.

Fyrirtækið er eins og er aðeins að selja iPhone 6s og 6s plus. Allar endurgerðirnar eru ólæstar og án sím korta. Símarnir innhalda nýjar rafhlöður og nýtt ytra borð. Þetta eru því góðar fréttir fyrir iphone aðdáendur þar sem betra getur verið að kaupa endurgerða síma frá fyrirtækinu sjálfu heldur en frá þriðja aðila þar sem þeir símar gætu verið í verra ásigkomulagi og með leynda galla. 

Apple hefur hingað til reynt að komast hjá því að selja endurgerða iPhone síma vegna þess að símarnir eru ein vinsælasta varan þeirra. Þannig myndi framboð á endurgerðum símum letja til kaupa á nýjum símum.

Ekki er vitað hvað orsakaði þessa nýju sýn Apple en sala iPhone 6s var ekki jafn mikil og sala á iPhone 6. Þetta gæti því orðið til þess að þeir nái að klára lagerinn sinn og á sama tíma öðlast þeir betri samkeppnisstöðu á markaði gagnvart Android símum. Þetta kemur fram á appleinsider

 


Tengdar fréttir

Síðasta andvarp Mac

Í nýjustu MacBook Pro kemur ekki hljóð þegar vélin er ræst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×