Viðskipti erlent

Apple flytur höfuðstöðvar sínar í eitt frægasta orkuver allra tíma

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rafstöðin er eitt helsta kennileiti Lundúna.
Rafstöðin er eitt helsta kennileiti Lundúna. Vísir/Getty
Apple mun flytja höfuðstöðvar sínar í Bretlandi í Battersea rafstöðina í Lundúnum sem staðið hefur auð og ónotuð árum saman. Unnið er að uppbyggingu á svæðinu en rafstöðin er eitt helsta kennileiti Lundúna.

Apple er nú þegar með átta mismunandi starfstöðvar í Bretlandi en reiknar fyrirtækið með að sameina þær í eina í rafstöðinni sem verið er að breyta til þess að laða að fyrirtæki og verslanir. Alls munu 1.400 starfsmenn starfa í höfuðstöðvum Apple í Battersea en áætlað er að fyrirtækið muni flytja inn árið 2021.

Rafstöðin var tekin í gagnið árið 1933 og framleiddi rafmagn allt til ársins 1983. Síðan þá hefur rafstöðin að mestu staðið auð og var ástand byggingarinnar orðið slæmt. Staðsetning hennar þykir þó afar góð enda er hún á bökkum Thames í suðvesturhluta Lundúna og hefur verið unnið að endurnýjun hennar undanfarin ár.

Er hún best þekkt fyrir að birtast á plötuumslagi plötu Pink Floyd, Animals, en henni hefur einnig brugðið fyrir í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við The Meaning of Life, The Dark Knight, Children of Men, Doctor Who og Spooks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×