Viðskipti innlent

Annars konar valkostur um verðlagningu

Sæunn Gísladóttir skrifar
Átta bensínstöðvum Skeljungs hefur verið breytt í Orkuna X.
Átta bensínstöðvum Skeljungs hefur verið breytt í Orkuna X.
Átta bensínstöðvum Skeljungs hefur verið breytt í Orkuna X. Á þeim stöðvum verður boðið upp á lægra dæluverð. Ekki verður boðið upp á afslátt á þessum stöðvum, heldur einfaldlega lægra verð á dælu. Í dag bjóða stöðvarnar til að mynda sjö krónum lægra verð en annars staðar samkvæmt tölum GSMbensín.

„Verðið breytist bara í takt við sveiflur í innkaupsverði, eins og það gerist á öðrum stöðum. Aðalbreytingin á þessum stöðum er að þetta er annars konar valkostur um verðlagningu. Flest olíufélög bjóða viðskiptavinum sínum afsláttarkerfi. En það er allnokkur hópur neytenda sem er ekki inn í þessum afsláttarkerfum. Við höfum ákveðið að bjóða þeim hópi sem kýs að vera utan þessara afsláttarhópa, eða þeim sem fá lægri afslátt, upp á lægra verð. Í dag erum við með sjö krónum lægra verð á dælu, það getur orðið lægra verð en einnig aðeins hærra. Aðalmálið er að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti gagnvart verðlagningunni," segir Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs.

Valgeir segir að vel hafi verið tekið í nýju stöðvarnar frá því að þær opnuðu. „Þessu hefur verið mjög vel tekið. Auðvitað er þetta svo sem ekki skýrt fyrir öllum en við sjáum alla veganna á þessum stöðvum að þeim hefur verið mjög vel tekið. Það er töluvert af nýjum viðskiptavinum sem eru að koma á stöðvarnar sem segir okkur klárega að það sé rými fyrir þessa tegund af verði fyrir einhvern hóp fólks," segir Valgeir.

Enn sem komið er hefur ekkert olíufélag brugðist við að sögn Valgeirs. „Þetta er fyrst og fremst öðruvísi nálgun á verðlagningu, þannig að það væri ósanngjarnt að segja að þetta væri lægra verð. En þetta er lægra verð fyrir þá sem hafa ekki verið inn í afsláttarkerfum olíufélaganna."

Valgeir segir að stöðvunum gæti fjölgað í framtíðinni. „Við munum fjölga í takt við þann meðbyr sem þetta konsept fær. Ef heldur áfram að vera tiltölulega ríkjandi ánægja með þetta, þá held ég að við munum fjölga þeim."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×