Viðskipti erlent

Alvarlegur öryggisgalli í vinsælu dulmálskerfi

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Óprúttnir tölvuþrjótar kunna að notfæra sér kerfisgallann til þess að stelast í upplýsingarnar þínar.
Óprúttnir tölvuþrjótar kunna að notfæra sér kerfisgallann til þess að stelast í upplýsingarnar þínar. Vísir/AFP
Google og finnska netöryggisfyrirtækið Codenomicon tilkynntu í vikunni að galli í dulkóðunarkerfinu OpenSSL gæti leitt til alvarlegrar misnotkunar. BBC greinir frá þessu.

OpenSSL er afar vinsælt dulkóðunarkerfi sem umbreytir viðkvæmum upplýsingum er þær eru sendar milli netþjóna, svo aðeins tilteknir aðilar geti gert upplýsingunum skil.

Tilkynning fyrirtækjanna tveggja segir galla hafa verið til staðar í kerfinu í heil tvö ár. Notfæri óprúttnir aðilar sér öryggisgallann geti þeir komist yfir notendanafn og lykilorð notanda.

Óvisst er hvort kerfisgallinn hafi verið með öllu óþekktur til þessa, en notfæri tölvuþrjótar sér gallann skilja þeir ekki eftir sig nokkurs konar slóð.

Ýmis tæknifyrirtæki og vefþjónustur líkt og margmiðlunar- og samskiptasíðan Tumblr hafa hvatt notendur til þess að breyta lykilorðum sínum í kjölfar uppgötvunarinnar - með áherslu á vefpóst, gagnageymslu og netbanka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×