
Alræmdur svindlari í gæsluvarðhald: Fjöldi örvæntingarfullra leigjenda í sárum

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að maður sé í haldi lögreglu grunaður um fjársvik tengd leigustarfsemi. „Það er rétt að við yfirheyrðum í fyrradag mann sem grunaður er um fjársvik í tengslum við leigu íbúðarhúsnæðis. Vegna rannsóknarhagsmuna var hann í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald,“ segir Grímur.
„Ég get ekki farið nánar út í það en við munum vinna að rannsókn þessara mála áfram og afla okkur allra nauðsynlegra upplýsinga á meðan.“
Halldór hefur nú ítrekað gerst milliliður fyrir fólk í leit að húsnæði til leigu. Hefur Halldór tekið íbúðir á leigu og framleigt þær öðrum, stolið undan leigugreiðslum þeirra og greitt aðeins fyrsta mánuðinn til réttra eigenda.
Lögreglan gerir sér ekki alveg grein fyrir því á þessari stundu hversu mörg málin verða þegar öll kurl verða komin til grafar.
„Til að mynda kom inn á borð lögreglunnar ein kæra í gær [fyrradag] og því getum við ekki með vissu sagt hversu mörg málin eru. Hins vegar get ég staðfest að þau eru nokkur sem um ræðir.“
Halldór Sanne hefur ítrekað ratað á síður blaðanna vegna svindls, svika og pretta.
Til að mynda hlaut hann þungan dóm í Danmörku og var gerður brottrækur þaðan fyrir umfangsmikið símasvindl þar sem hann vélaði um 800 farsíma af fólki með loforði um skjótan hagnað. Afplánaði Halldór hluta þess dóms á Kvíabryggju.
Halldór verður í gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 4. apríl. Á þeim tíma mun lögregla taka skýrslu af aðilum málsins, leita gagna um samskipti Halldórs við fórnarlömb sín og átta sig á umfangi svikanna.
Tengdar fréttir

Alræmdur svikari kominn á stjá: Reyndi að leigja hús sem hann á ekki
Halldór Viðar Sanne, dæmdur svikari, hefur verið kærður fyrir að hafa fé af konu um fyrirframgreidda leigu húsnæðis sem hann átti ekki. Halldór sér eftir því sem hann gerði en segir ásakanirnar bull og vitleysu.

Íslenskir námsmenn í skuldasúpu eftir viðskipti við Halldór Viðar Sanne
Tugir Íslendinga, í mörgum tilvikum ungir námsmenn með lítið fé milli handanna, sitja í skuldasúpu eftir viðskipti sín við svikahrappinn Halldór Viðar Sanne sem nú situr í gæsluvarðhaldi. Þeir sem verst urðu úti skulda milljónir.

Svindlari nýtir sér erfiðan leigumarkað
Tveir viðmælendur Fréttablaðsins saka Halldór Sanne um að hafa milljónir af þeim með svikum á leigumarkaði.

iPhone svindlarinn hafði fé af um hundrað manns
Halldór Viðar Sanne, sem situr í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn fyrir að svíkja fé út úr fólki er grunaður um að hafa svikið um 100 manns. Þetta segir Henning Schmidt, yfirmaður efnahagsbrotadeildar dönsku lögreglunnar í samtali við Vísi. Hann er talinn hafa staðið einn að svindlinu.