Heilsa

Afhverju virka megrunarkúrar ekki?

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/getty
Það eru til hundruðir mismunandi megrunarkúra og alltaf er einn tískukúr í gangi á hverjum tíma sem á að vera lausn allra vandamála. Líftími þeirra er þó yfirleitt frekar stuttur og einhver er ástæðan fyrir því.

Heilsuvísir tók saman helstu ástæður þess að megrunakúrar virka sjaldnast til lengdar.

1. Megrunarkúrar geta verið öfgafullir

Megrunarkúrar eru oftar en ekki mjög öfgafull lausn til þess að léttast. Að þurfa að henda öllu úr eldhúsinu og hætta að borða nokkra fæðuflokka eru allt of algengar kröfur í megrunarkúrum.

Það reynist fólki oft erfitt til langs tíma litið að halda sér við efnið þegar breytingarnar eru svona miklar á stuttum tíma. Fyrir suma er betra að taka lítil skref og mjaka sér í áttina að heilbrigðara mataræði smám saman. Mikilvægast er að hver og einn finni laust sem hentar og endist til lengri tíma.

2. Það getur verið leiðinlegt að vera í megrun

Það er langt frá því að vera ánægjulegt að borða mat sem er vondur. Til þess að fylgja megrunarkúrum þarf stundum að borða eitthvað sem ekki er sérstaklega gott eða að listinn yfir það sem má borða er mjög takmarkaður og fólk fær fljótt leið á því sem það á að borða. Það er enginn kúr eða mataræði sem hentar öllum og allir eiga að fá að borða eitthvað sem þeim finnst gott.

Það er heldur ekki skemmtilegt að þurfa að missa af matarboðum og sleppa því að fara út að borða með vinum af því að það er aldrei neitt sem má fá á boðstólum. Það nennir því enginn til lengdar.

Ef að kúrinn sem þú ert á lætur þér ekki líða vel andlega og líkamlega, er það þá kúr sem þú vilt vera á til lengri tíma?

3. Megrunarkúrar eru skammtímalausn

Það er ekkert mál að fylgja megrunarkúr í nokkrar vikur og léttast um nokkur kíló. Það er svo annað mál að haldast í þeirri þyngd þegar kúrnum er lokið. Oft bætir fólk á sig mjög fljótt þeim kílóum sem það missti og jafnvel nokkrum auka kílóum í leiðinni. Það getur einnig hægt á brennslunni að vera stanslaust að grennast og fitna til skiptist. 

Skiptir máli hvað vigtin segir?Vísir/Getty
Hvað er þá til ráða ef þú vilt léttast og megrunarkúrar henta þér ekki?

Planaðu fram í tímann hvaða breytingar þú ætlar að gera og breyttu einhverju litlu á hverjum degi. Mundu að þetta er lífstílsbreyting og hún tekur tíma. Ef þú ætlar að taka út fæðutegundir, taktu þá út tegundir sem þú veist að eru óhollar, heilbrigð skynsemi kemur manni langt í þessum efnum.

Passaðu upp á daglega næringarþörf þína og að finna aldrei fyrir of miklu hungri, þá er líklegra að þú grípir til einhverrar óhollustu. Borðaðu reglulega og hugsaðu um að næra líkama þinn og koma fram við hann af virðingu.

Borðaðu með núvitund, taktu þér tíma til þess að borða og virkilega njóttu þess.

Ekki beita þig of mikilli hörku og ef þér tekst ekki alltaf það sem þú ætlaðir þér, reyndu þá bara að gera betur næst. Hrósaðu þér fyrir það sem þú gerir vel og fyrir það að vera að taka skref í átt að heilbrigðara lífi.


Tengdar fréttir

Óhollasti hollustumaturinn

Í meðfylgjandi myndbandi fer Brenda Leigh Turner yfir 10 vörur sem eru markaðsettar sem hollustuvörur en er kannski ekki svo hollar eftir allt saman.

Hollustubröns að hætti meistara

Í þriðja þætti af Meistaramánuði sýndi Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir okkur hvernig á að galdra fram dýrindis helgarbröns sem innihélt meðal annars heimagert múslí, grænan drykk, eggjamúffur, salat, ávexti og heimsins auðveldustu pönnukökur.

Hvers vegna hugleiðsla?

Við hættum aldrei að hugsa því að heilinn er dugleg og falleg vél sem tekur sér aldrei frí. En að tengja sjálfsmynd okkar og persónuleika við þessa vél leiðir til vansældar. Þannig verður skortdýrið til – þegar við trúum því að við séum hugsanir okkar.

Æfing í að vera í núinu

Í Meistaramánuði huga margir að heilsunni í auknum mæli, líkamlegri sem andlegri. Hugleiðsla og þjálfun í núvitund getur hjálpað mörgum í dagsins önn, það þekki Gunnar Friðriksson af eigin raun.








×