Innlent

Aðalmeðferð í máli Blævar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar, vonast til að úrskurði mannanafnanefndar verði hnekkt.
Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar, vonast til að úrskurði mannanafnanefndar verði hnekkt. Mynd/AB
Aðalmeðferð fór fram í máli Stúlku Bjarkardóttur Rúnarsdóttur í dag, en mannanafnanefnd komst á dögunum að þeirri niðurstöðu að Stúlka mætti ekki heita Blær, þar sem um karlkynsorð væri að ræða. Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar, höfðaði í kjölfarið mál á hendur innanríkisráðherra, og er hún vongóð um að úrskurði nefndarinnar verði hnekkt.

„Hún tilkynnti dómara það að hún væri alsæl með nafnið, og hefði aldrei lent í neinum vandræðum með það nema í samskiptum við hið opinbera," segir Björk um dóttur sína, en Blær bar sjálf vitni, sem og móðir hennar og lögmaður mannanafnanefndar. „Lögfræðingur minn lagði fram gögn sem sýna að fordæmi er fyrir því að nafn geti verið bæði karlkyns og kvenkyns."

Niðurstöðu er að vænta fyrir mánaðamót, en mál Blævar hefur vakið heimsathygli, og ratað inn á borð fjölmiðla á borð við CNN, NBC og Fox News.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×