Viðskipti innlent

43 fá uppsagnarbréf hjá Landsbankanum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristján Kristjánsson er upplýsingafulltrúi Landsbankans.
Kristján Kristjánsson er upplýsingafulltrúi Landsbankans. Vísir/Vilhelm
Landsbankinn hefur fækkað starfsmönnum í höfuðstöðvum bankans í Austurstræti um 30 auk þess sem ráðningarsamningum allra sem starfa í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið sagt upp.

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi bankans, segir í samtali við Vísi að uppsagnirnar í höfuðstöðvunum nái til flestra sviða.

„Þetta er mjög dreift. Í fyrirtækja- og einstaklingsþjónustu, áhættustýringu og bakvinnslu,“ segir Kristján. Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiði til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum. Engar uppsagnir séu í útibúunum sjálfum.

Ástæða uppsagna í Leifsstöð er sú að bankinn er aðeins með samning þar til 30. júní. Til hafi staðið að halda útboð síðastliðið haust vegna bankastarfsemi í flugstöðinni en ekki hafi tekist að klára það. Samningur við bankann hafi verið framlengdur til sumarsins. Um varúðarráðstöfun sé að ræða.

Kristján segir að Landsbankinn muni að sjálfsögðu taka þátt í útboðinu hvenær sem það muni fara fram. Bankinn hafi verið með rekstur í flugstöðinni frá upphafi.

„Við munum reyna að gera áframhaldandi samning,“ segir Kristján. Takist samningar og bankinn haldi áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni verði uppsagnir starfsmanna afturkallaðar.

Fréttatilkynning Landsbankans í heild sinni

Áframhaldandi hagræðing í Landsbankanum

Landsbankinn vinnur áfram að hagræðingu og breytingum á sínum rekstri. Af þeim sökum fækkar um 30 manns í höfuðstöðvum bankans og að auki hefur ráðningasamningum fastráðinna starfsmanna í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verið sagt upp, en þar starfa 13 manns.  Uppsögnin í Leifsstöð verður afturkölluð, haldi bankinn áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni eins og verið hefur.  

Uppsagnirnar í höfuðstöðvum bankans ná til flestra sviða. Úrvinnsla ýmissa mála er tengjast hruninu er nánast lokið og m.a. þess vegna verða gerðar ákveðnar breytingar á skipulagi og mönnun bankans.  Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiðir til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum.

Ákvörðun um uppsögn starfsfólks  í  Flugstöð Leifs Eiríkssonar er varúðarráðstöfun af hálfu Landsbankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar. Þjónustusamningi bankans  var sagt upp á síðasta ári og tilkynnt að fjármálaþjónusta yrði boðin út og átti það að gerast á síðastliðnu hausti. Af því varð ekki og í lok árs var gerður viðauki við þjónustusamning Landsbankans sem fól í sér að afgreiðsla bankans yrði opin til 30. júní 2015. Óvissa ríkir því um það hver muni sinna fjármálaþjónustu í Leifsstöð  eftir það.

Landsbankinn hefur rekið afgreiðslu í Leifsstöð allt frá opnun og hyggst taka þátt í útboði Isavia um bankaþjónustu þegar það verður auglýst.  

Vegna þess fjölda sem um ræðir falla hagræðingaraðgerðirnar undir skilgreiningu hópuppsagna og hefur viðkomandi yfirvöldum verið tilkynnt um þær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×