Innlent

200.000 króna sekt fyrir að lenda við Holuhraun

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Maðurinn sagði að auðvelt hefði verið fyrir sig að yfirgefa svæðið ef hættuástand hefði skapast.
Maðurinn sagði að auðvelt hefði verið fyrir sig að yfirgefa svæðið ef hættuástand hefði skapast. vísir/auðunn
Þyrluflugmaður, sem lenti þyrlu í þrígang innan bannsvæðis við Holuhraun, hefur verið dæmdur til að greiða 200.000 krónur í sekt í ríkissjóð vegna brot síns. Fjórtán daga fangelsi kemur í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna.

Maðurinn, sem starfaði hjá Reykjavík Helicopters, lenti í tvígang í september 2014 og eitt sinn í október sama ár á svæðinu. Í fyrri tvö skiptin flaug hann með jarðfræðing og fjölmiðlamann en í október flaug hann með ferðamann. Var hann sakfelldur fyrir brot gegn lögreglulögum fyrir að hafa, með háttsemi sinni, ekki hlýtt tilmælum lögreglu.

Lögreglan hafði lokað fyrir alla umferð um svæðið tímabundið vegna hættuástands. Þar var um að ræða áðurnefnt eldgos í Holuhrauni og yfirvofandi flóðavá úr Dyngjujökli.

Sjá einnig:Dönsuðu steinsnar frá eldgosinu

Maðurinn viðurkenndi að hafa lent á svæðinu en taldi sig ekki hafa gerst brotlegan við lög. Hann byggði á því að hann hefði aldrei fengið upplýsingar eða fyrirmæli um að flug væri bannað innan svæðisins. Þá hefði hann verið á þyrlu sem gerði honum kleift að yfirgefa svæðið nær samstundis ef eitthvað hefði komið upp á.

Í málinu lágu fyrir tilkynningar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra þar sem sagt var frá banninu. Þær voru birtar á heimasíðu almannavarna, Facebook og Twitter og að auki sendar fjölmiðlum. Því féllst dómurinn ekki á röksemdir mannsins um að hann skyldi sýknaður þar sem Isavia sendi honum eigi tilkynningu um bannið.

Í ljósi þess að maðurinn var aðeins starfsmaður í ferðinni, hafði engan persónulegan ávinning af því og að brotið hafði ekki alvarlegar afleiðingar, var refsing hans ákveðin 200.000 króna sekt. Að auki skikkaði Héraðsdómur Norðurlands eystra hann til að greiða lögmannskostnað upp á rúmar 750.000 krónur.


Tengdar fréttir

Fleiri ákærðir fyrir brot við Holuhraun

Þrír einstaklingar hafa verið ákærðir fyrir að hafa þann 4. september árið 2014 ekið inn á svæði sem lögreglustjórar á Húsavík og Seyðisfirði höfðu lokað fyrir allri umferð vegna eldgoss í Holuhrauni og yfirvofandi flóðahættu úr Dyngjujökli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×