Handbolti

„Væri sárt að missa af ÓL í Ríó“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari.
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari. Vísir/Eva Björk
Íslenska handboltalandsliðið á enn möguleika á að komast á næstu Ólympíuleika en óhætt er að segja að þeir hafi stórminnkað er Ísland tapaði fyrir Danmörku í 16-liða úrslitum á HM í handbolta í gær.

Heimsmeistararnir, gestgjafarnir og allir álfumeistararnir fá þátttökurétt á leikunum - alls sex lið. Tólf lið berjast svo um hin sex Ólympíusætin í undankeppni.

Sex af þessum tólf sætum í undankeppninni er úthlutað hér á HM í Katar. Þau sex lið sem enda í 2.-7. sæti fara í undankeppnina og í því fólust mestu möguleikar Íslands að komast á Ólympíuleikana. Þeir eru nú úr sögunni enda féll Ísland úr leik í 16-liða úrslitum keppninnar og hafnaði í ellefta sæti.

Næsta Evrópumeistaramót mun ráða úrslitum um vonir þeirra Evrópuþjóða sem eftir standa um að komast til Ríó. Verði Ísland Evrópumeistari fara strákarnir okkar beint inn á Ólympíuleikana og þurfa ekki að fara í undankeppnina.

Sjá einnig: Ísland endaði í ellefta sætinu á HM í Katar

En að öðrum kosti þurfa strákarnir að verða í í hópi þeirra tveggja liða sem bestum árangri ná á EM í Póllandi af þeim liðum sem ekki tryggja sér þátttökurétt á HM hér í Katar.

Sjö þjóðir af þeim átta sem komust í 8-liða úrslit HM í handbolta eru Evrópuþjóðir. Ef þessar sjö þjóðir komast allar í undankeppnina fyrir ÓL og raða sér svo í efstu sjö sæti EM á næsta ári munu áttunda og níunda sætið á EM í Póllandi gefa þátttökurétt í undankeppninni.

Ef að Ísland kemst á EM, sem enn er óvíst, er líklegt að strákarnir muni berjast við lið eins og Svíþjóð, Makedóníu, Austurríki, Rússland og Tékkland um þessi mikilvægu sæti á EM í Póllandi.

Sjá einnig: Guðmundur: Þykir vænt um drengina í íslenska liðinu

„Það væri afar sárt að missa af Ólympíuleikunum ef það verður svo niðurstaðan. Ég verð að segja það,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Íslands, við Vísi eftir leikinn gegn Dönum í gær.

„Það er þó enn möguleiki að fá þetta sæti í gegnum EM á næsta ári,“ ítrekar Aron og bendir á að fyrirfram var vitað hversu erfið leiðin inn í 8-liða úrslitin á HM í Katar yrði.

„Við lendum í þrijða sæti í gríðarlega erfiðum riðli og lendum svo gegn Dönum sem urðu í öðru sæti í sínum riðli. Það er hálfgalið því að míni viti eru Danir með eitt af 2-3 sterkustu liðum heims.“


Tengdar fréttir

Áskorun að halda fána Íslands á lofti í handboltanum

"Við vildum gefa þessu liði einn séns á stórmóti og freista þess að ná toppframmistöðu úr þessum leikmönnum,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari eftir að Ísland féll úr leik á HM í Katar í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×