Innlent

„Það munar um hvern rass“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Reynt verður að slá heimsmet Guinness í taubleyjuskiptingum á laugardaginn, hinn 26. apríl næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem Ísland tekur þátt í keppninni, en á síðasta ári var skipt um taubleyjur á 8.301 barn á einum sólarhring, þar af voru 59 íslensk börn.

„Með þessu viljum við vekja athygli á taubleyjum. Taubleyjur eru fyrir umhverfisvænar, hagkvæmdar og góðar fyrir barnið,“ segir Helga Dögg Yngvadóttir, ein þriggja sem stendur fyrir viðburðinum.

Í gærkvöldi höfðu 37 skráð sig til þátttöku. Helga segir að á síðasta ári hafi verið ansi mjótt á munum. „Hefði Ísland ekki tekið þátt þá hefði metið ekki verið slegið. Það munar um hvern rass.“

Staðfesting sem Helga og sonur hennar fengu frá Guinness á síðasta ári.mynd/helga
Heimsmetabók Guinness setur reglur um að sá sem skiptir um bleyju þarf að vera eldri en 18 ára og má barnið ekki vera meira en einn meter á lengd. Þá má bleyjan sem notuð verður ekki vera heimagerð. Teknar verða myndir af þátttakendum fyrir og eftir atburðinn og verða vitni á svæðinu sem staðfesta að farið verði að settum reglum.

Viðburðurinn verður haldinn í Fjölskyldumiðstöð Lygnu í Síðumúla 10. Húsið verður opnað klukkan 10.15 og lokar fyrir skráningu klukkan 10.30. Þátttakendum er þá  beint inn í afmarkað rými og verður blásið til skiptingarinnar á slaginu 11. Þátttakendur eru því beðnir um að mæta tímanlega.

„Þetta verður skemmtilegur dagur. Það verður ljósmyndari á svæðinu, það verður happdrætti og matur. Við hvetjum alla til þess að skrá sig og taka þátt í þessu með okkur,“ segir Helga að lokum.

Hér er hægt að skoða Facebook síðu viðburðarins.

Hér að neðan má sjá taubleyjuviðburðinn í Flórída á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×