Innlent

„Ef fólki blöskrar þá finnst mér að opinberar stofnanir eigi að leggja við eyrun“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Kristín Völundardóttir veitti undirskriftunum viðtöku.
Kristín Völundardóttir veitti undirskriftunum viðtöku. Vísir/GVA
Illugi Jökulsson afhenti Útlendingastofnun í morgun tíu þúsund undirskriftir sem safnast höfðu til stuðnings Telati-fjölskyldunni en stofnunin hafnaði því að veita þeim hæli í síðustu viku.

Ákvörðunin hefur verið kærð og verður kæran tekin fyrir á næstu vikum eða mánuðum. Málið er því í raun komið úr höndum stofnunarinnar. „Mér fannst rétt að beina þessari undirskriftarsöfnun til stofnunarinnar af því að hún fellir þennan upprunalega úrskurð,“ útskýrir Illugi.

Það var skellur fyrir fjölskylduna að fá neitun um hæli hér á landi og fjölmargir Íslendingar hafa lýst yfir vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunnar.

Illugi kom undirskriftunum haganlega fyrir í möppu.Vísir/GVA
Illugi segir að vel hafi verið tekið á móti sér í morgun.

„Forstjórinn tók við undirskriftunum.“

Illugi hafði gengið frá listanum í möppu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Því næst settust Illugi og Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunnar, í kaffi og skiptust á skoðunum.

Sjá einnig: „Sameinast um að gera líf hælisleitenda á Íslandi að lifandi helvíti“

„Hún útskýrði fyrir mér sjónarmið hennar stofnunnar. Þau eru í stuttu máli, eins og fram hefur komið, að hennar stofnun geti ekki annað gert því að hún verði að framfylgja þeim lögum sem í gildi eru. Ég var eftir því sem áður ósammála því að stofnunin bæri einhverja skyldu til að fella úrskurði eins og í tilviki þessarar albönsku fjölskyldunnar. Ég var eftir sem áður jafn ósammála því að stofnuninni bæri einhver skylda til að fella úrskurði eins og í tilviki fjölskyldunnar. Ég hef orð færustu lögfræðinga fyrir því að stofnuninni sé alveg fullkomlega heimilt að fella þá úrskurði af mannúðarástæðum að þessi fjölskylda og nokkrar aðrar í sömu stöðu ættu að mega eiga hér heima.“

Illugi og Kristín eru ósammála.Vísir/GVA
Finnst að Útlendingastofnun eigi að viðurkenna mistök sín

Útlendingastofnun birti á vef sínum í gær umfjöllun um stöðu Albana sem sækja hér um hæli en samkvæmt stofnuninni er stór hluti hælisumsókna þeirra ekki á rökum reistur meðal annars vegna þess að Albanía er friðsælt ríki.

Eins og áður segir rituðu tíu þúsund manns nafn sitt við listann en með honum var þess krafist að fjölskyldan fengi hér hæli. „Ef einn maður á Facebook getur á tveimur til þremur dögum safnað tíu þúsund undirskriftum til að segja Útlendingastofnun að hún hafi gert mistök þá finnst mér bara að stofnunin eigi að viðurkenna mistök sín. Hvað söfnunin gekk fljótt og greiðlega fyrir sig sýnir að fólki blöskraði. Ef fólki blöskrar þá finnst mér að opinberar stofnanir eigi að leggja við eyrun.“

Afrit af undirskriftunum verður komið áleiðis til innanríkisráðuneytisins sem hefur umsjón með málaflokknum. Þetta kemur fram á vefsíðu Útlendingastofnunnar. „Kristín áréttaði að stofnunin væri bundin af lögum og mannréttindareglum í störfum sínum og þeim hefði verið fylgt að öllu leyti í málunum,“ segir á vef stofnunarinnar.


Tengdar fréttir

Nær útilokað að Telati- fjölskyldan fái hér hæli

Erfitt getur verið fyrir fólk frá Albaníu að fá dvalarleyfi vegna atvinnu hér á landi. Lögfræðingur með sérhæfingu í málefnum útlendinga telur dvalarleyfi af mannúðarástæðum bestu lausnina fyrir Telati-fjölskylduna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×