Innlent

Ýrr og Gilbert safna peningum með aðstoð Framsóknar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gilbert, Ýrr og Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður ráðherra, ásamt myndinni glæsilegu af Sigmundi Davíð.
Gilbert, Ýrr og Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður ráðherra, ásamt myndinni glæsilegu af Sigmundi Davíð.

Listakonan Ýrr Baldursdóttir mætti ásamt umboðsmanni sínum Gilberti Grétari Sigurðssyni, einnig þekktur sem Gilbert Soberman, á skrifstofu Framsóknarflokksins með forláta mynd sem Ýrr málaði af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. 

Fjallað var um myndina á Vísi á dögunum þegar myndirnar voru auglýstar til sölu. Þá átti helmingur söluandvirðis myndarinnar af Sigmundi Davíð, og annarri af Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, að renna til Barnaspítala Hringsins og langveikra barna. Nú er hins vegar tekið fram að allur ágóði muni renna til góðgerðarmála.

„Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá að láta gott af sér leiða. Þeir fá þá kannski plús í kladdann ffá þjóðinni enda eru þeir ekki í öfundsverðri stöðu. Svo er þetta auðvitað tækifæri fyrir Sigmund Davíð og Bjarna að eignast fallegan erfðagrip,“ sagði Ýrr í viðtali við rekstur á dögunum.



Á heimasíðu Framsóknarflokksins kemur fram að myndin af Sigmundi Davíð verði til sýnis á skrifstofu flokksins á Hverfisgötu næstu vikur eða þar til það verði selt í þágu góðs málefnis. Verkið er unnið með airbrush tækni og segir Ýrr að kveikjan að verkinu hafi verið til að safna peningum fyrir gott málefni. Hún hefur áður selt verk sín í þágu góðs málefnis og má nefna gítar sem hún málaði fyrir hljómsveitina Skálmöld.

Öllum er frjálst að bjóða í verkið en lágmarksverð er 300 þúsund krónur. Fréttaskrifari Framsóknarflokksins hvetur áhugasama kaupendur til að hringja beint í Gilbert í síma 775-3268. Í fyrri fréttum af verkunum kom fram að Bjarni og Sigmundur Davíð hefðu forkaupsrétt á myndunum en svo virðist sem þeir hafi ekki kosið að nýta sér hann enn sem komið er að minnsta kosti. 


Tengdar fréttir

Benni Ólsari tjáir sig um árásina

"Ég er einn vinsælasti einkaþjálfarinn á Íslandi í dag og þegar vel gengur hjá manni á að reyna eyðileggja,“ segir Benni Ólsari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×