Yfirvegun í stað stóryrða

Fréttablaðið Fastir pennar 02. september 2010 07:15
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir Mynd/Stefán Karlsson
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:

Þingsályktunartillaga um að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka er meðal þeirra mála sem kunna að verða rædd og jafnvel afgreidd á septemberþingi sem hefst í dag.

Í Fréttablaðinu í dag birtist niðurstaða skoðanakönnunar sem Capacent gerði nú í ágústlok fyrir samtökin Sterkara Ísland. Niðurstaða hennar er að 45,5 prósent þjóðarinnar eru andvíg áframhaldandi samningaviðræðum, 38,8 prósent vilja að viðræðunum verði haldið áfram.
Enn er sem sagt meirihluti fyrir því að draga aðildarumsóknina til baka áður en viðræður eru í raun hafnar. Andstaðan er þó ekki jafnmikil og hún var í júníbyrjun þegar sambærileg könnun var gerð fyrir Andríki á vegum Markaðs- og miðlarannsókna. Þá vildu aðeins 24,3 prósent þjóðarinnar halda viðræðunum áfram en 57,6 prósent vildu að umsóknin yrði dregin tilbaka.

Fyrir liðlega ári þegar Alþingi samþykkti að sækja um aðild að Evrópusambandinu sýndu skoðanakannanir hins vegar að meirihluti þjóðarinnar var hlynntur aðildarumsókn og hafði svo verið um allnokkurt skeið. Þekkt er að það sem skipti sköpum um afstöðubreytinguna voru samskipti Íslands við Breta og Hollendinga vegna Icesave-deilunnar.

Þrátt fyrir að Evrópusambandsumræðan hafi alltaf verið nokkuð tilfinningaþrungin þá urðu hvörf í tengslum við Icesave-deiluna.

Krafan um að ekki verði látið á það reyna hverjir kostir og gallar aðildar geti orðið fyrir þjóðina heldur verði umsóknin dregin til baka er furðuleg. Sú krafa verður ekki túlkuð öðruvísi en svo að einhverjir óttist umræðu sem byggir á raunverulegum samningsdrögum. Þinginu ber vonandi gæfa til að slá þessa tillögu út af borðinu því með henni er lokað á þá umræðu sem nauðsynlegt er að eigi sér stað en greinilegt er að ákveðnir hagsmunahópar kæra sig ekki um að hún fari fram.

Það verður að ræða Evrópusambandsaðildina meðan á samningaferlinu stendur en umræðan flyst þó á allt annað plan þegar drög að samningi liggja fyrir. Það er ekki fyrr en þá sem eitthvað er raunverulega fast í hendi með það hvað aðildin þýðir fyrir afkomu þjóðarinnar; hvernig áhrif hún hefur á rótgrónar atvinnugreinar, viðskiptaumhverfið, efnahagslífið og síðast en ekki síst daglegt líf venjulegs íslensks launafólks og neytenda.

Óábyrgur, tilfinningaþrunginn og gífuryrtur málflutningur þegar kemur að Evrópusambandsaðild er ekki bara lítt fallinn til að byggja á upplýsta ákvörðun heldur einnig bæði leiðinlegur og jafnvel beinlínis mannskemmandi. Vonandi ber þjóðinni gæfa til að eiga skynsamlegt og upplýst samtal um kosti og galla aðildar, ekki bara fyrir tiltekna hagsmunahópa heldur ekki síður fyrir fólk sem lærir, giftist og eignast börn, vinnur og fer á eftirlaun, kemur sér upp húsnæði, fer í ferðalög og þar fram eftir götunum; venjulegt fólk.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Yfirvegun í stað stóryrða