Erlent

Yfirmaður fíkniefnalögreglu stýrði smyglhring

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Saksóknarar krefjast 13 ára fangelsisdóms yfir yfirmanni fíkniefnadeildar finnsku lögreglunnar.
Saksóknarar krefjast 13 ára fangelsisdóms yfir yfirmanni fíkniefnadeildar finnsku lögreglunnar.
Það voru áhyggjur fyrrverandi yfirmanns fíkniefnadeildar finnsku lögreglunnar af blómabeði í garði hans sem leiddu til þess að þar fundust 65 þúsund evrur í reiðufé. Yfirmaðurinn, Jari Aarnio, er grunaður um að hafa stýrt smyglhring sem á árunum 2010 til 2012 smygluðu 900 kílóum af hassi til Finnlands við átta mismunandi tilfelli. Talið er að hagnaðurinn hafi numið 1,8 milljónum evra.

Hitna fór undir Aarnio í desember 2011 þegar smygla átti tunnu til Finnlands með 141 kílói af hassi frá Hollandi. Hollenska lögreglan varaði kollega sína í Finnlandi við til að þeir gætu handtekið þá sem tækju á móti tunnunni. Aarnio er sagður hafa beitt ýmsum brögðum til að villa um fyrir samstarfsmönnum sínum til að grunur beindist ekki að honum. Sá hann meðal annars til þess að grunur félli á saklausan mann. Við rannsókn málsins þótti ljóst að leki væri innan lögreglunnar og var hann rakinn til yfirmannsins.

Þegar hann var handtekinn í nóvember 2013 kom í ljós að hann gat ekki gert grein fyrir hvaðan reiðuféð var komið sem hann greiddi með fyrir bíla og byggingarefni í hús sitt.

Leit í einbýlishúsi Aarnio og sumarbústað bar ekki árangur. Yfirlögregluþjónn sem hleraði síma eiginkonu Aarnios fannst skilaboðin sem lögreglumaður í fíkniefnadeildinni bar eiginkonunni eftir að hann hafði heimsótt hann í gæsluvarðhaldið einkennileg. Þau voru á þann veg að mikilvægt væri að setja spýtu yfir beð í garðinum, einkum hægra hornið.

Það var samt ekki fyrr en í maí þegar frost var farið úr jörðu að fata með 65 þúsund evrum fannst.

Aarnio neitar öllum sakargiftum og segir einhvern hafa grafið niður féð til að koma sök á hann. Lögreglan segir ekkert hafa verið grafið niður frá því í nóvember 2013 til 2014 þegar garðurinn var vaktaður með myndavélum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×