Erlent

Vopnhléi lýkur: Ísraelar lofa umfangsmiklum hernaðaraðgerðum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hernaðaraðgerðir eru hafnar að nýju.
Hernaðaraðgerðir eru hafnar að nýju. Vísir/AP
Ísraelski herinn tilkynnti í morgun að hernaðaraðgerðir á Gaza-svæðinu myndu hefjast á ný eftir að viðræður um vopnahlé runnu út í sandinn. Tilkynning yfirvalda í Ísrael er afdráttarlaus og lofar umfangsmiklum aðgerðum með loftárásum og fjölgun hermanna á jörðu niðri.

Hamas þvertók fyrir að samþykkja tillögur um vopnahlé. Um tuttugu eldflaugum var skotið frá Gasa að Ísrael. Ísraelskur hermaður lést í nótt og annar særðist. Þar með hafa fjörutíu og þrír Ísraelsmann fallið í átökunum sem hófust með loftárásum Ísraelshers áttunda júlí síðastliðinn. Vel yfir þúsund Palestínuenn hafa fallið á Gaza, þar af þrír í nótt, og á sjötta þúsund særst.

Ísraelski kommúnistaflokkurinn mótmælti hernaðaraðgerðum í gær. Þessi mynd er tekin í borginni Tel Aviv.Vísir/AP
Stjórnvöld í Ísrael fullyrtu í gær að vilji væri til að framlengja tímabundið vopnahlé en það gátu Hamas-liðar ekki samþykkt. Aðeins væri hægt að samþykkja slíkt tilboð ef yfirvöld í Ísrael draga hermenn sína til baka og segið skilið við Gasa.

Talsmaður ríkisstjórnar Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði á samskiptamiðlinum Twitter í nótt að Hamas hafi með ákvörðun sinni hafnað vopnahléi á grundvelli mannúðarsjónarmiðar og að samtökin bæru alfarið ábyrgð á áframhaldandi átökum og blóðsúthellingum.

Fulltrúi Hamas ítrekaði um hæl að skilmálar Ísrael fryrir vopnahléi væru óásættanleg.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sneri heim til Washington í gær eftir langar og árangurslausar viðræður í Kaíró.

Í frétt New York Times kemur fram að sumir ísraelskir stjórnmálamenn vilji auka hörkuna í árásum hersins, gegn Hamas og öðru samtökum sem þeir telja að ógni Ísraelsríki.

Hernaðaraðgerðum var mótmælt víða um heim í gær. Þessi mynd var tekin í París, þar sem drengur særðist í mótmælunum.Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×