Viðskipti erlent

Vínýlplötusala jókst um 32% í Bandaríkjunum í fyrra

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sala á vínýlplötum fær hækkandi með ári hverju í heiminum.
Sala á vínýlplötum fær hækkandi með ári hverju í heiminum. Vísir
Innkoma af vínýlplötusölu í Bandaríkjunum í fyrra var hærri en sú innkoma sem náðist frá þeim net-notendum sem nota tónlistarveitur á borð við Spotify og YouTube frítt. Útgáfufyrirtækin ná sér í tekjur frá slíkum tónlistarunnendum með því að selja auglýsingar sem birtast þá á milli laga eða áður en afspilun hefst. Innkoma þaðan var um 385 milljónir dollara í fyrra. Þetta kemur fram í nýútgefinni ársskýrslu Recording Industry Association of America (RIAA).

Sala á vínylplötum jókst um 32% árið 2015 frá árinu á undan og náði 416 milljónum dollara en það hefur ekki gerst síðan árið 1988 eða rétt áður en geisladiskurinn varð aðal sölu afurð tónlistarbransans.

Vínýlinn á þó enn langt í land með að verða aftur helsta tekjulind tónlistarútgáfufyrirtækja því heildar velta tónlistarbransans í Bandaríkjunum er talin hafa verið um 7 milljarðar dollara á síðasta ári.

Í dag koma allir helstu útgáfur út á vínýl en tónlistarmenn hafa ekki séð ástæðu til þess í um 20 ár.


Tengdar fréttir

Á yfir 50.000 vínylplötur

Þýski raftónlistarmaðurinn Boys Noize kemur fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík í kvöld. Vínylplötuáhuginn kviknaði snemma og á hann yfir fimmtíu þúsund stykki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×