Innlent

Vill sjá hausa fjúka

Mynd/Róbert Reynisson
„Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna.

Einar segir niðurstöðu sérfræðingahópsins slíkan áfellisdóm yfir stefnu ríkisstjórnarflokkanna í þessum grundvallarmálaflokki að einhver hljóta að vera farinn að huga að því að hirða pokann sinn. Einar fjallar um málið á heimasíðu sinni.

Þar segir Einar þetta ekki í fyrsta sinn sem stefna ríkisstjórnarflokkanna í sjávarútvegsmálum fái svona verkun. „Í endurskoðunarnefndinni, sem kölluð hefur verið sáttanefnd, var leitað til Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri til þess að leggja mat á sjávarútvegsmálin og taka fyrningarleið ríkisstjórnarflokkanna sérstaklega út. Þar fékk fyrningarleiðin hrikalega útreið."

Þá segir Einar að það vekji athygli að ekki skuli lengur vera talað um þessi mál sem ríkisstjórnarmál heldur þess í stað talað um frumvörp Jóns Bjarnasonar. „Það á greinilega að reyna að hengja hann fyrir að hafa lagt fram kolómöguleg frumvörp. En þá skulum við gá að einu. Þessi frumvörp eru að sönnu á stjórnskipunarlega ábyrgð Jóns Bjarnasonar. En alveg fram að því að síðasti stafkrókur var í þeim skrifaður höfðu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon hönd í bagga. Og það höfðu líka fjórir eða fimm handvaldir þingmenn stjórnarflokkanna. Þetta fólk, - einkanlega ráðherrarnir, - bera því fulla ábyrgð á hneykslinu. Frumvörpunum, sem allir fyrirverða sig nú fyrir, en voru óvart afrakstur átta mánaða vinnu, samstarfs og hrossakaupa stjórnarflokkanna í þessum málaflokki."

Skrif Einars er hægt að lesa hér.


Tengdar fréttir

Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið

Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×