Vill að dómarinn víki vegna nafnlausra skrifa, "læka“ á Facebook og Twitter-færslna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. október 2015 10:54 Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er einn af ákærðu í Marple-málinu. Vísir/GVA
Hreiðar Már Sigurðsson, einn sakborninga í Marple-málinu og fyrrverandi forstjóri Kaupþings, telur Ásgeir Brynjar Torfason, sérfróðan meðdómanda í málinu, vera höfund nafnlausrar bloggfærslu á vefsvæði Egils Helgasonar sem birtist þann 10. desember 2009. Hreiðar hefur farið fram á að Ásgeir víki sæti í málinu en aðalmeðferð þess er lokið og á að kveða upp dóm á föstudaginn. Málflutningur um kröfuna verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Titill færslunnar sem vísað er til í kröfu Hreiðars er „Orðspor Íslendinga“ og er sögð vera eftir lesanda í Skandinavíu. Hreiðar telur sig hins vegar vita að greinin sé eftir Ásgeir Brynjar og fer fram á að hann víki sæti sem dómari í Marple-málinu meðal annars vegna þessara skrifa en í færslunni segir: „Útlendingar eru ekki að leika Íslendinga grátt, heldur var því þver öfugt farið, íslenskir bankar sviku útlendingana. Hrunið var ekki útlendingum að kenna – það er mikilvægt að horfast heiðarlega í augu við þá staðreynd.“Telur að Ásgeir hafi kallað stjórnendur Kaupþings „óreiðumenn“ Að mati Hreiðars er ekki hægt að skilja þessi skrif, sem hann telur vera Ásgeirs, öðruvísi en svo að dómarinn telji forstjórann fyrrverandi hafa leikið Íslendinga grátt og svikið útlendinga. Hrunið hafi meðal annars verið Hreiðari að kenna. Hann vill því að Símon Sigvaldason, dómsformaður, beri skrifin undir Ásgeir og fái svör við því hvort hann sé höfundur þeirra. Þá vísar Hreiðar jafnframt í önnur skrif á vef Egils Helgasonar, „Aftur að orðspori Íslendinga“, en þar kemur fram að höfundurinn sé Ásgeir Brynjar Torfason. Í þeim segir: „Alveg eins og skuldir vegna óábyrgra útlána seðlabankans til óreiðumannanna í gjaldþrota bönkunum.“ Þarna telur Hreiðar að verið sé að vísa til Kaupþings þar sem hann var eini bankinn sem fékk lán frá Seðlabankanum í aðdraganda hrunsins, nánar tiltekið 500 milljóna evra þann 6. október 2008. Stjórnendur Kaupþings séu því í skrifum Ásgeirs kallaðir „óreiðumenn“.Ásgeir Brynjar Torfason.„Lækaði“ grein um Seðlabankalánið á Facebook Þá er jafnframt farið fram á að Ásgeir víki sæti þar sem hann er stjórnarmaður í samtökunum Gagnsæi sem berjast gegn spillingu, en meðdómandinn hefur meðal annars skrifað grein um baráttuna gegn spilltu viðskiptaumhverfi. Að auki er í kröfu Hreiðars vísað í skrif meðdómandans á Twitter sem sakborningurinn telur sýna að Ásgeir hafi mikinn áhuga á þeim dómsmálum sem höfðuð hafa verið gegn Hreiðari og öðrum fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings. Einnig er vísað í „læk“ sem Ásgeir Brynjar setti á Facebook við grein Gylfa Magnússonar, dósents við viðskiptafræðideild HÍ. Greinin fjallar um neyðarlán Seðlabankans til Kaupþings og ber heitið „Lánað úr litlum forða“. Í henni segir: „Þessi lánveiting var um margt afar skrýtin. Í fyrsta lagi mátti öllum vera ljóst á þessum tíma að Kaupþing var á leið í þrot, þótt ekki hafi legið fyrir þá hversu slæmt eignasafn bankans var í raun.” Hreiðar telur að með því að setja „læk“ við grein Gylfa hafi Ásgeir lýst sig samþykkan þessari staðhæfingu í greininni auk þess sem vísað er í vídjóblogg Ásgeirs og Teits Atlasonar þar sem hann talar um lán Seðlabankans: „Íslendingar voru að reyna að bjarga bönkunum alveg fram í október 2008. Seðlabankinn var að lána pening, jafnvel til Kaupþings, þarna fyrir rétt fyrir hrun. Það voru hins vegar erlendir seðlabankar og fjármálamarkaðurinn sem veittu Íslendingum ekki meira lán af því að það var augljóst að þeir væru að fara með þetta í tóma vitleysu.“Tekist á um „læk“ í lekamálinu Í kröfu sinni um að meðdómandinn víki tiltekur Hreiðar fleiri dæmi sem hann segir gefa tilefni til þess að hann sem sakborningur í málinu megi efast um óhlutdrægni dómarans. Meðal annars dregur hann fram annað „læk“ á Facebook, deilingu á bloggfærslu og ummæli Ásgeirs í Háskóla Íslands um að íslensku bönkunum hafi verið stjórnað af glæpamönnum, en Hreiðar segist hafa heimildir fyrir því að Ásgeir hafi látið slík ummæli falla. „Læk“ á Facebook hefur einu sinni áður komið til kasta dómstóla en það var í lekamálinu svokallaða. Þá fór Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, fram á að sakamáli gegn sér yrði vísað frá dómi. Byggði krafan meðal annars á því að saksóknari í málinu, Helgi Magnús Gunnarsson, væri ekki óhlutdrægur þar sem hann hefði „lækað“ Facebook-færslu sem tengdist lekamálinu. Frávísunarkröfunni var hins vegar hafnað og þar með því að hlutdrægni fælist í því að setja „læk“ á Facebook.
Tengdar fréttir Hreiðar fer fram á að dómari í Marple-málinu víki sæti Kveða á upp dóm á föstudaginn. 5. október 2015 15:17 Guðný Arna: Skrifstofu Hreiðars var breytt í fundarherbergi Skýrsla var tekin af þremur af fjórum sakborningum í Marple-málinu í dag. 7. september 2015 22:30 Magnús Guðmundsson: Skúli gat aldrei fengið fjármuni úr viðskiptunum Aðalmeðferð í Marple-málinu verður fram haldið á morgun. 7. september 2015 17:30 Hreiðar Már segist sakaður um þjófnað án þess að hafa haft ástæðu til að stela Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gerði alvarlegar athugasemdir við meðferð á málum hans fyrir dómi við upphaf skýrslutöku yfir honum í Marple-málsins. 7. september 2015 13:06 Marple-málið: „Málatilbúnaður saksóknara stangast á mili mála“ Kristín Edwald segir að auðvelt hefði verið að reka Al-Thani málið og markaðsmisnotkunarmálið saman. 11. september 2015 08:00 Marple-málið: Gögnin bendi til að þau hafi verið útbúin eftir á til að hylja brotin Munnlegur málflutningur í Marple-málinu hófst í morgun með ræðu Arnþrúðar Þórarinsdóttur saksóknara málsins. 10. september 2015 13:19 Mest lesið Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira
Hreiðar fer fram á að dómari í Marple-málinu víki sæti Kveða á upp dóm á föstudaginn. 5. október 2015 15:17
Guðný Arna: Skrifstofu Hreiðars var breytt í fundarherbergi Skýrsla var tekin af þremur af fjórum sakborningum í Marple-málinu í dag. 7. september 2015 22:30
Magnús Guðmundsson: Skúli gat aldrei fengið fjármuni úr viðskiptunum Aðalmeðferð í Marple-málinu verður fram haldið á morgun. 7. september 2015 17:30
Hreiðar Már segist sakaður um þjófnað án þess að hafa haft ástæðu til að stela Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gerði alvarlegar athugasemdir við meðferð á málum hans fyrir dómi við upphaf skýrslutöku yfir honum í Marple-málsins. 7. september 2015 13:06
Marple-málið: „Málatilbúnaður saksóknara stangast á mili mála“ Kristín Edwald segir að auðvelt hefði verið að reka Al-Thani málið og markaðsmisnotkunarmálið saman. 11. september 2015 08:00
Marple-málið: Gögnin bendi til að þau hafi verið útbúin eftir á til að hylja brotin Munnlegur málflutningur í Marple-málinu hófst í morgun með ræðu Arnþrúðar Þórarinsdóttur saksóknara málsins. 10. september 2015 13:19