Innlent

Vill að afkomendur hennar viti að hún er saklaus

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Erla Bolladóttir segir að það að vera höfð fyrir rangri sök láti hana aldrei í friði.
Erla Bolladóttir segir að það að vera höfð fyrir rangri sök láti hana aldrei í friði. vísir/gva
Erla Bolladóttir segir endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu vera henni afar mikilvæga.

„Að vera hafður fyrir rangri sök er eitthvað sem lætur mann aldrei í friði, ég tala nú ekki um í svo alvarlegu máli. Hvernig sem fer mun ég aldrei losna undan því að vera persónugervingur fyrir þetta mál,“ segir Erla og segir tvennt skipta sig mestu máli við endurupptöku málsins.

„Ég vil að í huga afkomenda minna verði ljóst að amma þeirra og langamma var saklaus. Einnig er þetta mikilvægt fyrir samfélagið. Þetta mál hefur valdið miklu vantrausti í garð dómskerfisins og það þarf að hreinsa þetta upp, annars heldur það áfram að vera mein í kerfinu.“

Erla tók ákvörðun um að reyna endurupptöku árið 2000. Þá lagði hún inn beiðni um að talsmaður væri skipaður í máli hennar um endurupptöku.

„En þetta var snauplega afgreitt af Hæstarétti. Umsókn mín um talsmann var ranglega afgreidd sem beiðni um endurupptöku og var hafnað, enda var ég bara með sýnishorn af gögnum sem ég ætlaði að nota.“

Erla segir að þegar hún hafi fengið neitun hafi ekki verið í fleiri hús að venda. Nú hefur aftur á móti verið skipuð sérstök endurupptökunefnd og hægt að leita til hennar. Það og niðurstaða starfshóps sem fjallaði um málið olli því að lögmaður Erlu mun á næstu dögum leggja fram formlega beiðni um endurupptöku málsins.

„Niðurstaða starfshópsins var að það væri hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður minn hafi verið óreiðanlegur, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Það þýðir að ekki sé hægt að reiða sig á framburðinn sem grundvöll fyrir dómi,“ segir Erla.

Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Erlu, segir málið vera mjög stórt og gríðarlegt skjalamagn um að ræða. Því sé ómögulegt að áætla hvenær vinnu nefndarinnar ljúki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×