Handbolti

Vignir öflugur í sigri Midtjylland

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Ole Nielsen
Vignir Svavarsson átti afar góðan leik í sigri Midtjylland á Skanderborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Vignir skoraði sex mörk og lét reka sig útaf einu sinni, en lokatölur urðu fjögurra marka sigur Midtjylland, 30-26.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk í tveggja marka sigri Mors-Thy á SönderjyskE í sömu deild, en lokatölur urðu 24-22 Mors-Thy í vil.

Staðan var 12-10 fyrir SönderjyskE í hálfleik, en Guðmundur Árni og félagar snéru við taflinu í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×