Golf

Verður Fred Couples næsti fyrirliði Bandaríkjamanna í Rydernum?

Couples er mjög vinsæll kylfingur.
Couples er mjög vinsæll kylfingur. AP
Bandaríska golfsambandið setti á dögunum á laggirnar nefnd sem fær það verkefni að breyta gengi bandaríska Ryderliðsins á komandi árum en liðið hefur tapað fyrir Evrópuúrvalinu í síðustu þrjú skipti sem þetta sögufræga mót hefur verið haldið.

Síðast tapaði bandaríska liðið fyrir því evrópska í haust en í kjölfarið fóru af stað margar sögusagnir um ósætti innan liðsins og beindust spjót meðal annars að fyrirliða þess, Tom Watson, þar sem margar ákvarðanir hans voru gagnrýndar harðlega.

Í nefndinni eru mörg stór nöfn í bandarísku golfi, meðal annars Rickie Fowler, Tiger Woods og Phil Mickelson en hennar starf er að sjá til þess að fjórða tapið í röð verði ekki staðreynd.

Eftir fyrsta fund hennar fyrr í vikunni fékk goðsögnin Fred Couples símtal þar sem hann var spurður út í áhuga sinn á því að verða fyrirliði liðsins árið 2016 þegar að Ryderinn fer fram á Hazeltine vellinum í Minnesota, en Golfchannel greinir frá þessu.

Couples hefur aldrei tekið við fyrirliðastöðunni í Ryder-bikarnum en hann hefur farið fyrir bandaríska liðinu í síðustu þremur sigrum þess í Forsetabikarnum. Þá er Couples mjög vinsæll meðal kylfinga og golfáhugamanna um allan heim en hann myndi eflaust hjálpa bandaríska liðinu mikið verði hann fyrir valinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×