Viðskipti erlent

Verðmætasti samningur allra tíma í tæknigeiranum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Michael Dell, stofnandi Dell, verður framkvæmdastjóri sameinaða fyrirtækisins.
Michael Dell, stofnandi Dell, verður framkvæmdastjóri sameinaða fyrirtækisins. Vísir/EPA
Tölvufyrirtækið Dell mun kaupa gagnavörslufyrirtækið EMC Corp í samningi sem metinn er á 67 milljarða dollara, jafnvirði 8400 milljörðum króna. Þetta er verðmætasti samningurinn sem gerður hefur verið í tæknigeiranum. Tilboðið er 33,15 dollarar fyrir hvern hlut, jafnvirði rúmlega 4000 íslenskum krónum, auk fleiri greiðslna. EMC hækkaði um 3,9% eftir tilkynninguna.

Talið er að með samningnum geti Dell, sem er þriðji stærsti framleiðandi PC-tölva í heiminum fengið markaðshlut í gagnavörslu fyrir fyrirtæki víðsvegar um heiminn. Michael Dell mun stýra sameinaða fyrirtækinu. 

Samningurinn verður fjármagnaður af nýju eigið fé meðal annars frá Michael Dell, MSD Partners, Silver Lake og Temasek Holdings í Singapúr.

Frétt Reuters um málið.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×