Verðbólga á evrusvæðinu mældist að meðaltali 2,4 prósent í maí sl. samanborið við 2,6 prósent í apríl. Frá þessu greindi Hagstofu Evrópu, Eurostat, í morgun. Verðbólgan var minni en flestir greinendur höfðu spáð, að því er greint er frá á vefsíðu Wall Street Journal.
Verðbólgan er enn yfir markmiði Seðlabanka Evrópu sem er tvö prósent.