Golf

Veðrið setur strik í reikninginn á Honda Classic - McIlroy úr leik

Brendan Steele lét rigninguna ekki aftra sér í dag.
Brendan Steele lét rigninguna ekki aftra sér í dag. Getty
Rory McIlroy vonar eflaust að fall sé fararheill en hann er úr leik á Honda Classic sem fram fer á PGA National vellinum. Eftir tvo hringi er þessi besti kylfingur heims mjög neðarlega á skortöflunni á sjö höggum yfir pari.

Mótið er það fyrsta sem McIlroy tekur átt í á PGA-mótaröðinni á árinu en hann mun ekki koma til með að ná niðurskurðinum.

Veðrið í Flórídaríki setti strik í reikninginn á öðrum hring en það þurfti að fresta leik tvisvar og sumir kylfingar náðu aðeins að klára nokkrar holur.

Bandaríkjamaðurinn Brendan Steele leiðir mótið eins og er en hann lék fyrsta hring á 66 höggum eða fjórum undir pari. Hann var svo í banastuði á fyrstu fjórum holunum á öðrum hring þar sem hann fékk bara fugla áður en leikur var stöðvaður vegna veðurs.

Steele er því á átta höggum undir pari, tveimur höggum betri heldur en hinn ungi Patrick Reed sem náði að ljúka öðrum hring og er samtals á sex höggum undir pari.

Veðurspáin á PGA-National vellinum er betri á morgun en rástímar á þriðja degi hafa færst til svo að hægt verði að klára annan hring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×