MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 23:30

Di Canio úthúðar Phil Bardsley

SPORT

Veðbankar spá Rory McIlroy sigri á Masters

Vísir Golf 16. mars 2012 10:15
Veðbankar spá því að Norður-Írinn Rory McIlroy sigri á Mastersmótinu sem hefst þann 5. apríl.
Veðbankar spá því að Norður-Írinn Rory McIlroy sigri á Mastersmótinu sem hefst þann 5. apríl. GETTY IMAGES / NORDIC PHOTOS
Það styttist í að fyrsta stórmót ársins í golfíþróttinn en Mastersmótið á Augusta vellinum hefst þann 5. apríl. Veðbankar eru að sjálfsögðu farnir að taka við veðmálum og telja þeir mestar líkur á því að Norður-Írinn Rory McIlroy fái græna jakkann í verðlaun í mótslok.

Bandaríkjamennirni Tiger Woods og Phil Mickelson eru einnig líklegir til afreka. Tiger tilkynnti það í sjónvarpsþættinum Good morning America að hann yrði með á Mastersmótinu – en hann hætti keppni á lokadegi heimsmótsins um s.l. helgi.

Það er í raun lítið að marka spárnar sem veðbankar gefa upp fyrir stórmót. Reynslan hefur sýnt að á síðustu tveimur stórmótum hafa kylfingar í 111. og 108. sæti heimslistans staðið upp sem sigurvegarar.

Norður-Írinn Darren Clarke sigraði á opna breska meistaramótinu í fyrra og Bandaríkjamaðurinn Keegan Bradley sigraði á PGA meistaramótinu. Clarke var að leika á sínu 54. stórmóti á ferlinum og var að verða 43 ára þegar hann sigraði. Bradley var 25 ára og hann hafði aldrei leikið áður á stórmóti. Það er því ekkert mynstur í gangi þarna.

Staðan á heimslistanum í golfi hefur ekki skipt miklu máli þegar kemur að sigrum á stórmótum á síðustu misserum. Rory McIllroy var á meðal 10 efstu þegar hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í fyrra og Phil Mickelson var í einu af þremur efstu sætunum þegar hann sigraði á Mastersmótinu árið 2010.

Norður-Írinn Graeme McDowell var í 37. sæti heimslistans þegar hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu árið 2010, Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen var í því 54. þegar hann sigraði á opna breska 2010, Þjóðverjinn Martin Kaymer var í 13. sæti þegar hann sigraði PGA meistaramótið 2010. Charl Schwartzel frá Suður-Afríku hefur titill að verja á Mastersmótinu en hann var í 29. sæti á heimslistanum í fyrra þegar hann sigraði.

Tiger Woods er sá síðasti á undanförnum árum sem hefur náð að vinna stórmót á sama tíma og hann var í efsta sæti heimslistans. Woods sigraði á opna bandaríska meistaramótinu árið 2008.

Það eru mun meiri líkur á sviptingum í golfíþróttinn miðað við tennisíþróttina tekið er mið af heimslistanum. Novak Djokovic, Rafael Nadal eða Roger Federer hafa sigrað á 27 af síðustu 28 stórmótum í tennis. Aðeins Juan Martin Del Potro hefur rofið sigurgöngu þeirra en það gerði hann á opna bandaríska meistaramótinu árið 2009.

Staðreyndir á upphafi keppnistímabilsins á PGA mótaröðinni gefa einnig til kynna að erfitt er að spá um sigurvegara á fyrsta stórmóti ársins. Tólf mismunandi kylfingar hafa sigrað á fyrstu 12 mótum tímabilsins.

Martin Kaymer er eini kylfingurinn á meðal keppenda á Mastersmótinu sem hefur unnið stórmót og en aldrei náð í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi á Augusta vellinum. Í ár gerir Hinn 27 ára gamli Kaymer gerir nú fimmtu tilraunina við að komast í gegnum niðurskurðinn og hinn rólegi Þjóðverji er allt annað en sáttur við þá sögu sem hann er að skrifa alveg sjálfur. Í fyrra var hann fimm höggum frá því að komast áfram.

„Mastersmótið er risastór viðburður, en það eru sumir golfvellir sem henta manni betur en aðrir. Það getur verið erfitt að sætta sig við það. Ég þarf að gera breytingar á mínum leik, ég er ekki alveg með það á hreinu hvað ég þarf að gera en einn daginn mun það smella saman. Leikskipulagið er ekki aðalmálið – ég held ég þekki ekki völlinn nógu vel, ég kann ekki nógu vel á það sem hann hefur upp á að bjóða," sagði Kaymer við fréttamenn á dögunum.

Augusta-völlurinn er fljótur að refsa fyrir mistök. Rory McIllroy fékk að kenna á því í fyrra. Hann var efstur eftir þrjá hringi en missti alveg af lestinni á lokadeginum þar sem hann lék á 80 höggum. Hann endaði 10 höggum á eftir sigurvegaranum Charl Schwartzel.

Enski kylfingurinn Nick Faldo á einnig skemmtilega kafla í sögu Mastersmótsins. Faldo lék alls 23 sinnum á þessu móti og hann náði aðeins þrívegis að vera á meðal 10 efstu. Og í öll þrjú skiptin stóð hann uppi með græna jakkann í mótslok sem sigurvegari.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Golf 19. maí 2013 22:45

Henti áritaðri mynd af sér og Tiger Woods í ruslið

Kylfingurinn Rocco Mediate greindi frá því í sjónvarpsþætti David Feherty á Golf Channel að hann hefði fleygt ljósmynd af sér og Tiger Woods, með áritun Woods, í ruslið. Meira
Golf 19. maí 2013 11:08

Leik frestað í Þorlákshöfn

Tekin hefur verið sú ákvörðun að fresta leik á öðrum hring á stigamóti unglinga á Íslandsmótaröðinni sem fram átti að fara í Þorlákshöfn í dag. Meira
Golf 19. maí 2013 10:28

Unga kynslóðin fann fyrir vindinum í Þorlákshöfn

Kristján Benedikt Sveinsson úr Golfklúbbi Djúpavogs og Gísli Sveinbergsson úr Keili léku á pari á fyrri hring fyrsta stigamóts sumarins á Íslandsbankamótaröð unglinga í Þorlákshöfn í gær. Meira
Golf 19. maí 2013 09:00

Fór holu í höggi í sínu fyrsta höggi

Ungur kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, Bryndís María Ragnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór á holu í höggi í sínu fyrsta höggi á fyrsta stigamóti unglinga sem leikið er um helgina í Þorlákshöfn. Meira
Golf 16. maí 2013 06:30

Golfvertíðin hefst um helgina

Í vikunni var undirritað samkomulag á milli Golfsambands Íslands og Íslandsbanka um barna- og unglingastarf sambandsins í sumar. Meira
Golf 12. maí 2013 23:32

Tiger Woods vann Players-golfmótið í kvöld

Tiger Woods tryggði sér í kvöld sigur á Players-golfmótinu með því að spila lokadaginn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Woods lék tveimur höggum betur en næstu menn sem voru Svíinn David Lin... Meira
Golf 12. maí 2013 11:57

Garcia ósáttur við Tiger Woods

Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnað högg sem varð til þess að forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluðu saman þriðja hringinn á mótinu í gær. Meira
Golf 11. maí 2013 12:00

Tiger andar ofan í hálsmálið á Garcia

Spánverjinn Sergio Garcia er kominn með forystu á Players-meistaramótinu eftir annan hring. Tiger Woods er höggi á eftir Garcia. Meira
Golf 10. maí 2013 12:00

Tiger og Rory heitir á Sawgrass

Tiger Woods og Rory McIlroy byrjuðu báðir vel á Players-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Sawgrass-vellinum þekkta. Meira
Golf 09. maí 2013 13:00

Golfsumarsins beðið

Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu eru farnir að munda kylfurnar og vel það því margir af stærstu golfvöllum svæðisins verða opnaðir í dag eða um helgina. Meira
Golf 02. maí 2013 20:30

Tólf ára á Evrópumótaröðinni

Ye Wocheng, tólf ára kínverskur áhugakylfingur, varð í dag sá yngsti í sögunni til þess að keppa á Evrópumótaröðinni. Wocheng vill þó líklega gleyma frumrauninni sem allra fyrst. Meira
Golf 02. maí 2013 19:30

Óvíst hvenær hefja má leik á Leirdalsvelli

Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir að veður þurfi að batna til muna eigi kylfingar að geta hafið leik á vellinum þann 9. maí eins og vonir standa til. Meira
Golf 30. apríl 2013 12:15

Fékk bónorð á golfvellinum | Myndband

Kvenkylfingurinn Brittany Lang var ekki alveg í sínu besta formi á LPGA-móti í Texas en dagurinn hjá henni á golfvellinum endaði aftur á móti mjög vel. Meira
Golf 17. apríl 2013 16:00

Tólf ára kínverskur strákur keppir á Evrópumótaröðinni

Kínverskir kylfingar halda áfram að setja aldursmet í golfinu en nú er ljóst að hinn tólf ára gamli Ye Wocheng verður yngsti kylfingurinn til að keppa á Evrópumótaröðinni í golfi þegar hann keppir á V... Meira
Golf 15. apríl 2013 09:10

Átta Ástralir höfðu endað í öðru sæti á Mastersmótinu

Adam Scott endurskrifaði sögu ástralska kylfinga í gær með því að verða fyrsti Ástralinn til að vinna Mastersmótið í golfi. Fram að þessu leit hreinlega út fyrir að það lægju álög á áströlskum kylfing... Meira
Golf 15. apríl 2013 08:36

Svona fór Adam Scott að því að vinna Mastersmótið

Ástralinn Adam Scott tryggði sér sigur á Mastersmótinu í gær eftir bráðabana á móti Argentínumanninum Angel Cabrera. Nú er hægt að sjá svipmyndir frá lokadeginum inn á Sjónvarpsvef Vísis eða með því a... Meira
Golf 15. apríl 2013 07:37

Greg Norman hefur mikla trú á Adam Scott

Adam Scott vann í gær Mastersmótið í golf og fékk að klæðast græna jakkanum fyrstur Ástrala. Hann sagði eftir sigurinn að Greg Norman ætti þátt í þessum titli því hann væri sá sem ástralskir kylfingar... Meira
Golf 14. apríl 2013 23:59

Greg Norman á stóran þátt í titlinum

"Ég veit ekki hvernig þetta gerðist. Margt hefur breyst á tveimur árum,“ sagði Adam Scott. Nýbakaður sigurvegari á Masters átti erfitt með að koma tilfinningum í orð þegar græni jakkinn var í sj... Meira
Golf 14. apríl 2013 23:04

Adam Scott vann Masters eftir umspil

Ástralinn Adam Scott varð í kvöld fyrsti Ástralinn sem vinnur Masters-mótið í golfi. Hann tryggði sér sigur á annarri umspilsholu gegn Argentínumanninum Angel Cabrera. Hann setti niður um fjögurra met... Meira
Golf 13. apríl 2013 23:16

Cabrera og Snedeker leiða Masters | Tiger á smá von

Argentínumaðurinn Angel Cabrera og Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker eru efstir og jafnir á Masters-mótinu í golfi fyrir lokahringinn. Þeir eru báðir á samtals sjö höggum undir pari. Báðir kylfingar ... Meira
Golf 13. apríl 2013 19:24

Tiger sættir sig við refsinguna

Tiger Woods slapp við frávísun af Masters-mótinu fyrr í dag. Honum var þó refsað en hann fékk tveggja högga refsingu fyrir ólöglegt dropp sem þó var ekki viljandi. Meira
Golf 13. apríl 2013 13:45

Tiger slapp með skrekkinn

Tiger Woods var ekki vísað úr Masters-mótinu fyrir ólöglegt dropp á hringnum í gær. Hann fær aftur á móti tveggja högga víti frá dómaranefnd mótsins. Meira
Golf 13. apríl 2013 11:52

Örlög Tigers ráðast síðar í dag

Svo gæti farið að Tiger Woods verði rekinn úr Masters-mótinu. Því er haldið fram að hann hafi tekið ólöglegt högg á 15. brautinni í gær. Meira
Golf 12. apríl 2013 23:59

Heppnin ekki með Tiger á fimmtándu

Tiger Woods er í 7. sæti og þremur höggum á eftir efsta manni þegar Mastersmótið í golfi er hálfnað. Tiger byrjaði vel á öðrum hring en hafði ekki heppnina með sér á fimmtándu holunni. Meira
Golf 12. apríl 2013 23:42

Jason Day efstur þegar Masters-mótið er hálfnað - svipmyndir frá degi 2

Jason Day, 25 ára gamall Ástrali, er með forystu eftir annan dag á Mastersmótinu í golfi. Tiger Woods er í 7. sæti þremur höggum á eftir Day. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Golf / Veðbankar spá Rory McIlroy sigri á Masters
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000